Origo Akureyri

Fyrsta doktorsvörnin við Hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri

Fyrsta doktorsvörnin við Hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri

Miðvikudaginn 14. desember 2022 mun Lara Wilhelmine Hoffmann verja doktorsritgerð sína í félagsvísindum við Háskólann á Akureyri. Þetta kemur fram á vef Háskólans.

Doktorsritgerðin ber heitið Aðlögun innflytjenda á Íslandi: Huglægar vísbendingar um aðlögun innflytjenda á Íslandi byggðar á tungumáli, fjölmiðlanotkun og skapandi iðkun.

Vörnin fer fram á ensku í Hátíðarsal Háskólans á Akureyri kl. 13:00 og er öllum opin.

Ritgerðin var unnin undir leiðsögn Dr. Markus Meckl, prófessors við Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri. Auk hans voru í Doktorsnefnd Þóroddur Bjarnason, prófessor við Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri og Félagsvísindasvið Háskóla Íslands, Unnur Dís Skaptadóttir, prófessor við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands, og Yvonne Höller, prófessor við Sálfræðideild Háskólans á Akureyri.

Andmælendur eru Erika Hayfield, dósent í félagsvísindum við Sögu- og félagsvísindasvið Fróðskaparseturs Færeyja, og Þórólfur Þórlindsson, prófessor emeritus við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands.

Dr. Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir, forstöðumaður Miðstöðvar doktorsnáms, og Birgir Guðmundsson, settur forseti Hug- og félagsvísindasviðs, stýra athöfninni.

Skráning hér

Streymishlekkur hér

Viðburður hér

UMMÆLI

Sambíó