Fyrsti bæjarstjórnarfundur kjörtímabilsins

Fyrsti bæjarstjórnarfundur kjörtímabilsins

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar í fyrsta sinn á þessu kjörtímabili þriðjudaginn 7. júní kl. 16. Fundurinn verður haldinn í fundarsal á 1. hæð í Ráðhúsinu, Geislagötu 9, og er öllum opinn.

Á dagskránni eru fyrst og fremst hefðbundin fundarstörf á fyrsta bæjarstjórnarfundi, einkum kosningar í fastanefndir og aðrar nefndir sveitarfélagsins. 

Sjá má dagskrá fundarins í heild sinni á vef Akureyrarbæjar. Fundurinn verður tekinn upp og gerður aðgengilegur á heimasíðu bæjarins að honum loknum. Hér má finna upptökur frá bæjarstjórnarfundum

UMMÆLI

Sambíó