Gagnvirk Ljóðasýning opnar í Mjólkurbúðinni

Gagnvirk Ljóðasýning opnar í Mjólkurbúðinni

Fimmtudaginn 29.febrúar klukkan 17 opnar mögulega fyrsta gagnvirka ljóðasýning á íslandi í Mjólkurbúðinni – Sal Myndlistarfélagsins Gilinu Akureyri.

Sýningin samanstendur af 21 ljóði Í römmum sem öll eru 3 setningar. Á sýningunni er aðgengilegur QR-kóði sem gestir geta skannað og detta þá inn á heimasvæði ljóðanna þar sem höfundur hefur sett inn vísbendingar um kveikjur sumra ljóðanna. Þar gefst gestum kostur á að bæta við ljóðin, tjá upplifun sína, setja inn myndir, eða bara hvað sem er – eða bara sleppa því að taka þátt og skoða hvað aðrir hafa gert. Höfundur ljóðanna og hugmyndasmiður sýningarinnar er Arnrún Halla Arnórsdóttir, hjúkrunarfræðingur, háskólakennari, doktorsnemi og áhugaskáld.

Ljóðin á sýningunni eru öll 3 setningar. Af hverju? Jú af því að lífið þarf ekki að vera flókið og tölustafurinn 3 hefur mikla þýðingu í lífi höfundar t.d á hún 3 börn sem öllu breyttu.  Ljóðin á sýningunni eru ný, gömul, endurunnin, uppspuni og sannleikur, allt í bland upp úr skáldaskúffu Arnrúnar sem hefur verið að fyllast síðustu 31 árið eða svo.

Þetta er fyrsta opinberun höfundar á skáldskap sínum. Hingað til hafa ljóðin verið dregin fram á kort fyrir vini og fjölskyldu, upplestur til gamans eða miðaldurs útrás á andlitsbókinni.

Nú er komið að því að höfundur stígur út fyrir rammann og býður ykkur í dans með sér og ljóðunum. Njótið vel

Sýningartímar eru eftirfarandi;

1.mars kl.17-19

2.mars kl.14-17:

3.mars kl.14-17

8.mars kl.17-19

9.mars kl.14-18

10.mars kl.14-18

Sambíó

UMMÆLI