Gestavinnustofa Gilfélagsins laus í maí

Gestavinnustofa Gilfélagsins laus í maí

Gilfélagið auglýsir eftir listafólki til þess að dvelja frítt í Gestavinnustofu félagsins í maí. Umsóknarfrestur er til 20. apríl klukkan 16:00 og úthlutað verður tveimur dögum síðar.

Gilfélagið veitir einum listamanni eða pari tækifæri til að dvelja frítt í Gestavinnustofu Gilfélagsins í maí í samstarfi við Slippfélagið.

Gestavinnustofan er fullbúin íbúð með vinnustofu sem hentar einum listamanni eða pari. Íbúðin er staðsett í Kaupvangsstræti, eða Listagilinu í miðbæ Akureyrar þar sem er stutt að sækja alla helstu þjónustu svo ekki sé minnst á fjölbreytt menningarlíf. Listamaðurinn mun einnig fá 20.000 kr. úttekt í Slippfélaginu.

Til að umsókn verði tekið gild skal senda verkefnatillögu, hámark 200 orð á studio.akureyri@gmail.com, ferilskrá, hámark 2 blaðsíður ásamt hlekk á heimasíðu eða uþb. 5 myndir af verkum eftir listamanninn. Það er æskilegt að setja öll gögn í eitt .pdf skjal.

Nánari upplýsingar um aðstöðuna má finna á vef Gilfélagsins með því að smella hér eða hjá studio.akureyri@gmail.com.

UMMÆLI