Gjaldskylda tekin upp á bílastæðum í miðbæ AkureyrarTillögur að gjaldsvæðum samkvæmt nýju fyrirkomlagi.Mynd: akureyri.is

Gjaldskylda tekin upp á bílastæðum í miðbæ Akureyrar

Bæjarráð Akureyrarbæjar samþykkti á fundi sínum í morgun að taka upp gjaldskyldu á bílastæðum í miðbæ Akureyrar. Stefnt er að því að nýtt fyrirkomulag taki gildi í lok sumars. Frá þessu er greint á vef bæjarins í dag.

Þar segir að verkefnahópur skipaður starfsfólki bæjarins, ásamt sérfræðingi frá Eflu, hafi kortlagt og undirbúið þessar breytingar undanfarna mánuði. Breytingarnar séu í samraæmi við samstarfssáttmála bæjarstjórna og séu liður í að stefna að sjálfbærum rekstri bæjarins. Þá eigi þær að stuðla að bættri nýtingu bílastæða í miðbænum.

Á ákveðnum svæðum verður gjaldið 200 krónur fyrir klukkustund en á öðrum 100 krónur fyrir klukkustund. Þá verður einnig hámarkstími á ákveðnum svæðum en efst í fréttinni má sjá skýringarmynd.

„Í stuttu máli fela tillögur hópsins í sér að tekin verði upp tvö gjaldsvæði þar sem í dag eru gjaldfrjáls klukkustæði. Gjaldskyldutíminn taki að mestu mið af núverandi gildistíma klukkustæða og verð stuðli að því að bílastæðanýting sé um 85%, sem samsvarar því að ávallt verði eitt til tvö laus stæði í hverjum götulegg/svæði. Lagt er til að gögnum um notkun verði safnað reglulega og beitt til að ákvarða gjaldskrá og stýra eftirspurn. Sama stefna var tekin upp hjá Reykjavíkurborg árið 2019 en almennt hefur sambærileg stefna verið útfærð víða erlendis,“ segir í tilkynningunni á vef bæjarins.

Farið er yfir helstu markmiðin sem eru eftirfarandi:

• Bæta lífsgæði og skapa tækifæri fyrir fjölbreyttari notkun bæjarlands með því að stýra betur eftirspurn eftir bílastæðum.
• Draga úr umferð, umferðartöfum, útblæstri og hljóðmengun. Einnig að bæta umferðaröryggi fyrir aðra vegfarendur með því að draga úr fjölda ökumanna sem aka um og leita að lausum bílastæðum.
• Styðja við verslun og fyrirtæki, með því að auðvelda viðskiptavinum (íbúum og ferðamönnum), þjónustuaðilum og gestum að finna laus bílastæði.

Einnig er gert ráð fyrir breytingum á gjaldi fyrir fastleigustæði og að innleitt verði nýtt gjald fyrir bílastæðakort sem íbúar í miðbænum hafa hingað til fengið sér að kostnaðarlausu.

Stefnt er að því að nota nýjustu tækni við innheimtu gjalda með hjálp smáforrits þannig að fólk geti greitt í símanum, en einnig verða settir upp greiðslustaurar. Nánari upplýsingar og leiðbeiningar verða auglýstar vel þegar nær dregur.

Meirihluti bæjarráðs samþykkti innleiðingu á gjaldskyldu og fól bæjarlögmanni og sviðsstjóra fjársýslusviðs að útfæra tillögur að breytingum á samþykktum, gjaldskrá og reglum sem þarf í tengslum við innleiðinguna. Þessar tillögur verða síðan lagðar fram til staðfestingar og samþykktar í bæjarráði og bæjarstjórn.

Í þessari greinargerð er hægt að lesa nánar um stýringu bílastæða og gjaldskyldu. 

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó