Prenthaus

Gjaldtaka á bílastæðum í miðbæ Akureyrar hefst í janúarMynd: Akureyri.is

Gjaldtaka á bílastæðum í miðbæ Akureyrar hefst í janúar

Gjaldskylda á bílastæðum í miðbæ Akureyrar verður innleidd um miðjan janúar næstkomandi og tekur svo að fullu gildi í febrúar. Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti í nóvember nýja samþykkt fyrir bifreiðastæðasjóð Akureyrarbæjar og nýja gjaldskrá fyrir gjaldskyld bílastæði, bílastæðakort íbúa og bílastæðakort á fastleigusvæðum. 

Á vef Akureyrar má finna nýtt vefsvæði bifreiðastæðasjóðs þar sem er finna allar helstu upplýsingar um bílastæði, gjaldskyldu, stöðvunarbrotagjöld, fastleigukort og fleira ásamt greiðsluleiðbeiningum. Vefsvæðið er enn í vinnslu.

Í stuttu máli verða tvö ný gjaldsvæði í miðbæ Akureyrar. P1, sem kostar 200 krónur á klukkustund, og P2, sem kostar 100 krónur á klukkustund. Gjaldskyldutími er klukkan 10 til 16 virka daga. Afmörkuð bílastæði innan gjaldsvæðanna eru með 2 klukkustunda hámarkstíma og eru merkt með skiltum.

Hægt verður að nota rafrænar greiðsluleiðir í snjallsíma til þess að greiða fyrir afnot af bílastæðum. EasyPark og Parka bjóða upp á slíka þjónustu á Akureyri. Þá verða þrír stöðumælar staðsettir í miðbænum, við Skipagötu, Túngötu og Gilsbakkaveg.

Áfram verða um 600 gjaldfrjáls bílastæði í og við miðbæinn. Stæðiskort fyrir hreyfihamlaða veitir heimild til að legga í sérmerkt bílastæði og í gjaldskyld bílastæði án endurgjalds.

Íbúar með lögheimili á tilteknum svæðum í miðbænum sem hafa ekki aðgang að bifreiðastæði eiga kost á rafrænu bílastæðakorti. Gjald fyrir slík íbúakort er 6.000 kr. á ári. Samkvæmt nýju bílastæðakerfi verða tvö fastleigusvæði í miðbænum. Á svæði F1 (við Skipagötu og Hofsbót) er gjaldið 12.000 kr. á mánuði og á svæði F2 (við Túngötu) er það 6.000 kr. á mánuði.

Íbúa- og fastleigukort sem eru með gildistíma fram að áramótum gilda áfram þangað til nýtt kerfi tekur gildi um miðjan janúar. Sótt verður um rafræn íbúakort og fastleigukort í þjónustugáttinni.

„Um þessar mundir er unnið að undirbúningi rafrænna greiðslulausna og er stefnt að því að fólk geti byrjað að nota smáforrit EasyPark eða Parka um miðjan janúar til að greiða fyrir notkun á bílastæðum. Íbúar eru hvattir til að kynna sér þjónustu þessara fyrirtækja og ná í smáforrit í símann sinn. Á næstu dögum verða settar upp merkingar og skilti í miðbænum og síðan verður auglýst þegar gjaldtakan hefst,“ segir á vef bæjarins.

„Stöðumælar (greiðslustaurar) koma ekki til landsins fyrr en í febrúar og því eru nokkrar vikur í að þeir verði settir upp. Þangað til verður gefinn aðlögunartími og verða ekki lögð á aukastöðugjöld (stöðumælasektir) fyrr en allur búnaður er kominn í notkun. Hins vegar eru það vinsamleg tilmæli til þeirra sem nota gjaldskyld bílastæði að greiða fyrir þau með smáforriti í símanum um leið og merkingar þess efnis eru komnar upp.“

UMMÆLI

Sambíó