Gjaldtaka hafin á bílastæðum í miðbæ Akureyrar

Gjaldtaka hafin á bílastæðum í miðbæ Akureyrar

Gjaldtaka er hafin á bílastæðum í miðbæ Akureyrar en fyrstu vikurnar verður aðlögunartími og ekki verða lagðar á stöðumælasektir fyrr en allur búnaður er kominn í notkun, þar með taldir þrír stöðumælar sem eru væntanlegir um næstu mánaðarmót. Þetta kemur fram í tilkynningu Akureyrarbæjar þar sem segir að stefnt sé að því að gjaldskyldan verði að fullu innleidd í byrjun mars.

Fyrstu vikurnar eru aðlögunartími og er fólki því gefinn kostur á að ná í smáforrit í símann, læra á lausnirnar og prófa. Rafrænar greiðsluleiðir í snjallsímum hafa verið virkjaðar og eru íbúar bæjarins, sem og gestir, hvattir til að ná í viðeigandi greiðsluöpp og byrja að greiða fyrir notkun á gjaldskyldum bílastæðum.

EasyPark og Parka bjóða upp á greiðsluöpp í snjallsíma. Fólk er hvatt til að kynna sér þjónustu þessara fyrirtækja og velja þá lausn sem hentar. Á vefsvæði bifreiðastæðasjóðs Akureyrarbæjar eru nánari upplýsingar um rafrænar greiðsluleiðir og margt fleira.

Merkingar eru komnar upp á þeim svæðum í miðbænum þar sem eru gjaldskyld bílastæði. Smelltu hér til að skoða kort af gjaldsvæðunum

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um fastleigu- og íbúakort. Íbúar með lögheimili á tilteknum svæðum í miðbænum sem hafa ekki aðgang að bifreiðastæði eiga kost á rafrænu bílastæðakorti og er gjald fyrir slíkt kort 6.000 kr. á ári.

Samkvæmt nýju bílastæðakerfi eru tvö fastleigusvæði í miðbænum. Á svæði F1 (við Skipagötu og Hofsbót) er gjaldið 12.000 kr. á mánuði og á svæði F2 (við Túngötu) er það 6.000 kr. á mánuði. Sótt er um fastleigu- og íbúakortin rafrænt í þjónustugátt bæjarins.

Sambíó

UMMÆLI