Origo Akureyri

Gjöf frá Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis

Gjöf frá Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis (KAON) afhenti lyflækningadeild Sjúkrahússins á Akureyri svokallaðar verkjadýnur á dögunum. Þær eru sérstaklega hannaðar fyrir sjúklinga með verki en reynast einnig vel sem legusáravörn.

„Við höfum hingað til þurft að forgangsraða þeim sem þurfa hvað mest á þessum dýnum að halda þar sem við áttum ekki nógu margar – núna verður þetta auðveldara fyrir okkur,“ segir Ester Þóra Bragadóttir, deildarstjóri lyflækningadeildar.

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis er mikið í mun að styðja við krabbameinssjúklinga og í sameiningu við starfsfólk SAk var það lendingin að verkjadýnurnar væru mest aðkallandi. Enn fremur hefur félagið hug á því að styðja við líknarstarf á sjúkrahúsinu.

Fyrir um ári síðan styrkti KAON einnig almenna göngudeild SAk með kaupum á skjá sem hangir inni á biðstofu og sýnir efni sem er gagnlegt fyrir krabbameinssjúka og aðstandendur þeirra.

Nánari upplýsingar um Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis má finna hér: www.kaon.is

Á mynd með frétt frá vinstri: Hafdís Sif Hafþórsdóttir meðstjórnandi KAON og starfsmaður lyflækningadeildar, Maron Björnsson meðstjórnandi KAON, Þóra Ester Bragadóttir deildarstjóri lyflækningadeildar, Sólveig Hulda Valgeirsdóttir aðstoðarforstöðuhjúkrunarfræðingur á lyflækningadeild og Þórunn Sif Héðinsdóttir ritari KAON.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó