Intersand MaxCare 12 kg | Gæludýr.is

Góð tíðindi

Góð tíðindi

Eftir Harald Inga Haraldsson oddvita sósíalista í Norðausturkjördæmi

Kærleikshagkerfið sem sósíalistar boða er góð tíðindi.  Það fjallar um að auka lýðræði, hlusta á vilja almennings og fara eftir honum. Styðja við þá veiku og fátæku. Lyfta samfélaginu upp frá botninum ekki smyrja öllu upp á blá toppinn sem hrynur svo yfir okkur öll.

Við viljum kerfisbreytingar og segjum hreint út að ekkert dugi nema þær.  Smáplástrapólitíkin skilar engum árangri.  Gott dæmi um það er hækkun barnabóta í tíð síðustu ríkistjórnar.  Vissulega hækkuðu barnabætur.  Það var smáplástur,  Hann var svo rifin af í skyndi hinumegin í ríkisreikningum.  Verðhækkanir gerðu ávinninginn að engu. 

Stjórnarliðar, sérstaklega forystufólk VG hreykja sér mikið af hækkun barnabóta en forðast að segja alla söguna.  Þannig er smáplástrapólitíkin fyrst og fremst áróðurstæki til að viðhalda óbreyttu ástandi.

Ekkert nema kerfisbreytingar geta komið til leiðar varanlegum ávinningi launafólks, bótaþega, einstæðra mæðra og annarra sem nýfrjáshyggjukerfið neitar um réttlátan skerf í samfélaginu.  

Fyrir því vill Sósíalistaflokkurinn berjast.  Það eru góð tíðindi.

Með því að breyta ríkisfjármálum, hefta græðgi fjármálakerfisins, taka upp félagslega bankastarfsemi með samfélagsbönkum og skattleggja þau ríku svo þau greiði sinn réttláta skerf skjótum við efnahagslegum stoðum undir það verkefni að byggja upp samfélag sem hefur hagsmuni almennings að kjölfestu og hafnar rörsýn á hagsmuni fjármagnseigenda, stórfyrirtækja og bankakerfis.

Við viljum gjaldfrjálst heilbrigðiskerfi sem nær til alls landsins, gjaldfrjálsar samgöngur um land allt, nýtt fiskveiðikerfi sem færir auðinn til þjóðarinnar og setur hömlur á auðræði þeirra fáu. Skilum þeirri skömm sem er fátækt barna og þeirra lægstlaunuðu.  Sama á við um fátækt aldraðra og öryrkja, grimmilegar skerðingar og skattkerfi sem níðist á almenningi en eys forréttindum yfir þá ríku.

Hefjum stórátak í byggingu félagslegra íbúða.

Þetta eru lausnir ekki smáplástrar.  Látum ekki skrökva því að okkur að þetta sé ekki hægt.  Við lifum í einhverju auðugasta landi veraldarinnar.  Jöfnuður og sanngjörn skipting er allt sem þarf.

Það eru góð tíðindi

Og núna 25 september snúum við  vörn í sókn.

Sósíalistaflokkurinn þorir

Sósíalistaflokkurinn getur

Þú kjósandi góður hefur aflið  til að gefa okkur. Þetta eru mikilvægustu kosningar í langan tíma; annarsvegar er hörð hægristefna með einkavæðingu og auðmannadekri og hins vegar er kærleikur félagshyggjunnar og loksins raunveruleg andstaða við sérhagsmunastefnu stjórnvalda.  Kjörklefinn stendur þér opinn til að til þess að velja á milli.

Með því að setja x við j á kjördag hefjum við löngu tímabæra baráttu og hefjum nýtt tímabil andstöðu við auðvaldið og uppbyggingu félagslegra gilda

Kjósum með hjartanu. Skilum Rauðu – X-J  á kjördag.


Kaffið.is fylgist með Alþingiskosningunum í haust með áherslu á Norðausturkjördæmi. Finna má fleiri greinar og annað gagnlegt efni tengt kosningunum með því að smella hér.

Vilt þú birta grein á Kaffið.is? Sendu á okkur með því að smella hér

Sambíó

UMMÆLI