Góðgerðavika Menntaskólans skilaði 875 þúsund krónum til Aflsins

Mynd: ma.is

Í dag var fulltrúum Aflsins, samtaka gegn kynferðis- og heimilisofbeldi á Norðurlandi, afhentur afrakstur áheita og góðgerðaviku Menntaskólans á Akureyri. Nemendur skólans stóðu fyrir góðgerðavikunni fyrir skemmstu og náðu að safna 875 þúsund krónum.

Nemendur skólans gengu meðal annars yfir Vaðlaheiði með sjúkrabörur í misjöfnu veðri, eyddu heilum skóladegi í uppblásinni sundlaug, löbbuðu aftur á bak heilan skóladag og margt fleira. Auk þess klæddi Jón Már Héðinsson skólameistari skólans sig upp sem köttur á lokadegi átaksins.

Fulltrúar úr stjórn Hugins, skólafélags MA afhentu fulltrúum Aflsins, Elínbjörgu Ragnarsdóttur og Þórunni Önnu Elíasdóttur ávísun að upphæð 875 þúsund krónur. Elínbjörg þakkaði með nokkrum orðum fyrir höfðinglegan stuðning, sem kæmi sér ákaflega vel í því uppbyggingarstarfi sem verið væri að vinna hjá Aflínu.

Á myndinni eru þær Þórunn Anna og Elínbjörg með ávísunina, en við hlið þeirra eru Kolfinna Frigg Sigurðardóttir, Una Magnea Stefánsdóttir og Ingvar Þóroddsson inspector scholae.

Sambíó

UMMÆLI