Góðir gestir í heimsókn í tilefni af 20 ára afmæli Lagadeildar Háskólans á Akureyri

Góðir gestir í heimsókn í tilefni af 20 ára afmæli Lagadeildar Háskólans á Akureyri

Á morgun, miðvikudaginn 22. mars klukkan 8:30 til 12:30, fer fram málþing í tilefni af 20 ára afmæli Lagadeildar Háskólans á Akureyri. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og Berglind Ósk Guðmundsdóttir, alþingismaður eru á meðal þeirra sem tala á málþinginu.

Markmið málþingsins er að heiðra þau sem lögðu grunninn að velgengni deildarinnar ásamt því að dreifa þekkingu á þeim lagarannsóknum sem fræðimenn við Lagadeild HA eru að stunda. Bæði fyrrum og núverandi kennarar og stúdentar, ásamt öðrum sem hafa tengsl við Lagadeildina eða almennt við laganám á Íslandi, munu halda kynningar um ýmis lögfræðileg álitaefni á málþinginu.

Dagskrá

08:30     Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri – Setning málþings

08:40     Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands – Forsetinn og stjórnarskráin – sjö árum síðar

08:55     Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

09:10     Berglind Ósk Guðmundsdóttir, alþingismaður – Frá laganámi til lagasetningar

09:25     Júlí Ósk Antonsdóttir, aðjúnkt við Lagadeild og landsréttarlögmaður – Réttindi brotaþola

09:40     Birna Ágústsdóttir, sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra – Stafræn vegferð hins opinbera – hvers ber að gæta?

09:55     Aðalheiður Ámundadóttir, lögfræðingur og blaðamaður – Blaðamennska í óvinveittu lagaumhverfi – um lög og venjur sem hamla daglegu starfi blaðamanna á ritstjórnum landsins

10:10     Rachael Lorna Johnstone, prófessor og deildarforseti Lagadeildar – Pallborðsumræður

10:30     Kaffihlé

10:45     Mikael Karlsson, heiðursgestur, prófessor í heimspeki og fyrrverandi forseti Félagsvísinda- og lagadeildar HA – Um tilgang lagamenntunar

11:05     Nökkvi Alexander Rounak Jónsson, stúdent í framhaldsnámi við Lagadeild HA – Persónulegt laganám í hjarta Akureyrar

11:20     Ingólfur Friðriksson, deildarstjóri Evrópumála á viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins – Áhöld um innleiðingu bókunar 35 við EES-samninginn – Frumvarp til laga um breytingar á lögum um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993

11:35     Rachael Lorna Johnstone, prófessor og deildarforseti Lagadeildar – Heimskautaréttur eftir innrás Rússa í Úkraínu

11:50     Sara Fusco, doktorsnemi við Háskólann í Lapplandi og fyrrverandi LLM stúdent við HA – Eignarréttur frumbyggja á landi sínu út frá sjónarhóli stjórnskipulegrar umhverfisverndar

12:05     Valgerður Guðmundsdóttir, lektor við Lagadeild – Pallborðsumræður

Viðburðurinn er opinn öllum.

Samfélagsleg áhrif laganáms á Akureyri | Háskólinn á Akureyri (unak.is)

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó