Góðverkavika nemenda Oddeyrarskóla

Oddeyrarskóli

Vikuna 3. – 7. apríl 2017 var haldin góðverkavika í Oddeyrarskóla á Akureyri í annað sinn. Áhersla var lögð á að vinna með nærsamfélaginu, gera góðverk hjá einstaklingum og fyrirtækjum og skora á aðra að gera góðverk og styrkja Unicef.

Nemendur unnu ýmis góðverk, s.s. að syngja og dansa fyrir eldri borgara á Hlíð, gefa íbúum í hverfinu fjölnota innkaupapoka sem nemendur saumuðu auk þess að færa íbúum fallegar orðsendingar og hjörtu með hlýjum kveðjum. Jafnframt komu nemendur í þau fyrirtæki og til þeirra einstaklinga sem tóku áskorun okkar og hjálpuðu til með ýmsum hætti.

Nú þegar hafa safnast 43.000 krónur á reikning nemendafélagsins. Þessum peningum höfum við nú ráðstafað til að kaupa á sjö ofurhetjupökkum  og 20 lítra af næringarmjólk handa börnum sem þurfa á þessu að halda.  Við erum glöð og stolt af því að vinna með nærumhverfinu og geta gefið af okkur og glatt aðra, enda eru einkunnarorðin okkar ÁBYRGÐ, VIRÐING og VINÁTTA,“ segir í tilkynningu á heimasíðu skólans.

Sambíó

UMMÆLI