Prenthaus

Grímseyingar bólusettir í dagMynd: Anna María Sigvaldadóttir/Akureyri.is

Grímseyingar bólusettir í dag

Íbúar Grímseyjar voru bólusettir í dag þegar að nokkrir starfsmenn frá Heilbrigðisstofnun Norðurlands flugu til eyjunnar frá Akureyri. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.

„Alls voru 16 bólusettir í þessari ferð með bóluefni frá Jansen og þurfa því ekki fleiri bólusetningar að sinni. Alls eru um 40 manns í Grímsey um þessar mundir og höfðu því margir nú þegar fengið bólusetningu í landi. Það munar miklu fyrir íbúa að fá þessa þjónustu út í eyju því það er bæði kostnaðarsamt og tímafrekt að ferðast til Akureyrar til að fá sprautuna,“ segir í tilkynningu bæjarins.

UMMÆLI