Guðmundur Baldvin svarar gagnrýni um lóðaskort á Akureyri

Guðmundur Baldvin svarar gagnrýni um lóðaskort á Akureyri

Guðmundur Baldvin Guðmundsson, formaður bæjarráðs Akureyrar, ákvað að tjá sig um stöðu mála á Akureyri vegna mikillar umræðu um íbúðaskort og vandræði verktaka á að fá lóðir á Akureyri.

„Eftir nokkur rýr ár í kjölfar hrunsins hafa íbúðabyggingar farið á gott skrið á liðnum árum og frá árinu 2015 hafa að meðaltali 170 íbúðir verið fullkláraðar árlega. Nú liggur fyrir að ríflega 200 íbúðir klárast í Hagahverfi á þessu ári og búast má við að framkvæmdir hefjist við um 180 íbúðir í Hagahverfi á árinu. Þá hefur 89 íbúðum verið úthlutað annars staðar í bænum sem fara vonandi í framkvæmdir á þessu ári, þar á meðal spennandi uppbygging við Austurbrú. Þá er ótalið að í haust koma til úthlutunar lóðir í Holtahverfi þar sem um er að ræða tæplega 300 íbúðir þar sem framkvæmdir gætu hafist á árinu 2022. Við gætum því séð yfir 500 íbúðir koma inn í nýjar framkvæmdir á árunum 2021-2023 auk þeirra 200 íbúða sem fullklárast á þessu ári. Í kjölfarið verður svo komið skipulag fyrir Kollugerðishaga en þar verður framtíðaruppbygging og gert ráð fyrir ríflega 700 íbúðum í fyrri áfanga þess skipulags en um 1300 íbúðum alls,“ skrifar Guðmundur á Facebook síðu sinni í gær.

Í frétt á vef RÚV segir að tæplega 40 prósent færri íbúðarhús séu í byggingu á Norðurlandi en á sama tíma í fyrra. Þar sé aðallega lóðaskorti á Akureyri um að kenna.

Guðmundur Baldvin segir þó óhætt að halda því fram að uppbygging íbúða í bænum hafi verið afar kröftug á síðustu árum og að bjart sé framundan.

Pétur Ingi Haraldsson, sviðsstjóri skipulagssviðs Akureyrarbæjar, segir í samtali við RÚV að lóðaframboð verði aukið í bænum á næstunni. 

„Akkúrat í dag eru ekki margar lóðir lausar til úthlutunar. Hérna inni á Akureyri erum við bara með níu einbýlishúsalóðir og eina raðhúsalóð sem er laus eins og staðan er í dag en við erum nýlega búin að samþykkja deiliskipulag í Holtahverfi þar sem er gert ráð fyrir allt að 300 íbúðum sem koma á lóðum sem verða lausar vonandi í haust.“

Sambíó

UMMÆLI