Origo Akureyri

Hættuástand við Dettifoss

Hættuástand við Dettifoss

Svæðið við Dettifoss vestan ár er lokað vegna asahláku og mikilla vatnavaxta. Hætta er á því að fólk lendi í lífshættu og hætt er á gróðurskemmdum. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Vatnajökulsþjóðgarðs í dag.

„Við vonumst til að geta opnað svæðið næstkomandi fimmtudagskvöld eða á föstudaginn. Frekari upplýsingar síðar,“ segir í tilkynningunni.

Lögreglan á Norðurlandi eystra hvetur ferðafólk að fara eftir fyrirmælum sem gefin hafa verið.

Sambíó

UMMÆLI