Prenthaus

Hallgrímur Jónasson ráðinn þjálfari KA næstu þrjú árin

Hallgrímur Jónasson ráðinn þjálfari KA næstu þrjú árin

Knattspyrnudeild KA hefur samið við Hallgrím Jónasson um að taka við þjálfun meistaraflokks karla næstu þrú árin af Arnari Grétarssyni. Hallgrímur hefur verið leikmaður KA frá árinu 2018 og aðstoðarþjálfari liðsins frá 2020. Mun hann taka við stjórn liðsins um komandi mánaðarmót og stýra liðinu í síðustu fimm leikjum tímabilsins en liðið er nú í harðri baráttu um Evrópusæti á næsta ári. Þetta kemur fram á vef KA í dag.

„Hallgrímur á að baki farsælan feril sem knattspyrnumaður bæði hérlendis sem og erlendis. Þá hefur Hallgrímur leikið 16 leiki fyrir A-landslið Íslands og gert í þeim þrjú mörk. Hann kom til KA frá Lyngby BK árið 2018 og hefur átt mikinn þátt þeirri í uppbyggingu sem hefur átt sér stað á knattspyrnustarfi KA á undanförnum árum. Þá hefur hann sinnt þjálfun yngriflokka félagsins og annast stjórnun á afreksþjálfun innan deildarinnar en hún hefur svo sannarlega borið ávöxt fyrir liðsmenn KA sem og félagið í heild sinni. Frá árinu 2020 hefur Hallgrímur verið aðstoðarþjálfari Arnars Grétarssonar með meistaraflokk KA sem hefur stimplað sig inn með eftirtektarverðum hætti í toppbaráttu Bestudeildarinnar og áður Pepsí-Maxdeildarinnar,“ segir um Hallgrím á vef KA.

„Við erum mjög ánægð með að hafa gengið frá þessari ráðningu“, segir Hjörvar Maronsson formaður knattspyrnudeildar KA. „Það hefur verið mikill stígandi í allri þjálfun og stýringu liðsins, sem endurspeglast hefur í bættum leik liðins á undangengnum árum. Við teljum Hadda vera okkar besta val í að halda áfram á sömu braut og byggja á þeim grunni sem hér hefur verið lagður. Hann gjörþekkir alla innviði félagsins og er auk þess mikil fyrirmynd á meðal iðkenda okkar. Við hlökkum til samstarfsins með Hadda en þökkum um leið Arnari Grétarssyni fyrir mikið og óeigingjarnt starf fyrir félagið. Við sem félag erum gríðarlega þakklát fyrir starf Arnars og óskum honum alls hins besta í framtíðinni.“

Sambíó

UMMÆLI