Hallgrímur og Helena íþróttafólk KA árið 2023

Hallgrímur og Helena íþróttafólk KA árið 2023

Hallgrímur Mar Steingrímsson og Helena Kristin Gunnarsdóttir voru í gær kjörin íþróttafólk KA árið 2023. Á vef KA segir eftirfarandi um þau Hallgrím og Helenu:

Helena Kristín var ein af lykilmanneskjunum í framúrskarandi blakliði KA þegar stelpurnar okkar unnu alla þá titla sem hægt var að vinna tímabilið 2022-2023. Stelpurnar urðu Meistarar meistaranna, deildarmeistarar, bikarmeistarar og að lokum Íslandsmeistarar. Helena var í lok tímabils valin í lið ársins í stöðu kants auk þess að vera valin besti leikmaður Úrvalsdeildarinnar af Blaksambandi Íslands.

Hallgrímur Mar átti gott tímabil með KA í Bestu deildinni. Hann var stoðsendingarhæsti leikmaður Bestu deildarinnar með 13 stoðsendingar sem var jöfnun á stoðsendingameti efstu deildar. Í deild, bikar og Evrópukeppni skoraði hann 10 mörk. Hallgrímur Mar var lykilmaður í KA liðinu sem fór alla leið í þriðju umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar og í bikarúrslit.  Erfitt er að finna félagsmet í meistaraflokki KA í knattspyrnu sem Hallgrímur Mar á ekki en hann er leikjahæsti, stoðsendingahæsti og markahæsti leikmaður KA frá upphafi

Sambíó

UMMÆLI