![Sjúkrahúsið á Akureyri](http://www.kaffid.is/wp-content/uploads/2017/01/IMG_3167.jpg)
Sjúkrahúsið á Akureyri
Karlmaður var handtekinn á Sjúkrahúsinu á Akureyri í nótt. Samkvæmt lögreglu var maðurinn í annarlegu ástandi og gekk berserksgang í biðstofu slysadeildar áður en hann lagði leið sína inn á sjúkrahúsið og að fæðingardeildinni.
Samkvæmt mbl.is barst lögreglu tilkynning um manninn klukkan 3:40 í nótt. Þá hafði hann brotið innstokksmuni á biðstofu sjúkrahússins og rokið út. Í kjölfarið braut hann rúðu til þess að komast inn á sjúkrahúsið sjálft og gekk þar um ganga þar til hann endaði á fæðingardeildinni.
Þar var hann handtekinn og fluttur í fangaklefa. Hann verður yfirheyrður þegar ástand hans lagast en maðurinn á við veikindi að stríða. Lögreglan segir að enginn hafi slasast.
UMMÆLI