„Hann hélt að Iceland væri í Nova Scotia“

„Hann hélt að Iceland væri í Nova Scotia“

„Fine, fine“ svaraði Fats Domino sígildri spurningu blaðamanns um álit rokkarans á landi og þjóð þegar hann steig út úr flugvél sinni á Akureyrarflugvelli þann 2. febrúar 1987. Fats lýsti yfir ánægju með snjóinn á Akureyri. Hann kvaðst aldrei hafa spilað og skemmt fólki á jafn norðlægum slóðum. Með því sama settist hann inn í Benz glæsibifreið og hvarf af vettvangi ásamt Björgvini Halldórssyni sem fylgdi rokkgoðinu norður. Nokkrum klukkustundum síðar var Domino mættur ásamt hljómsveit sinni í Sjallann, í fyrsta gigg af þremur.

Blaðamaður Dags var á staðnum og hélt ekki vatni yfir sýningunni sem Domino bauð upp á. „Það er erfitt að finna hin réttu lýsingarorð sem ná yfir þá gríðarlegu stemmningu sem ríkti í Sjallanum á mánudagskvöldið er hinn heimsfrægi Fats Domino hélt þar sína fyrstu tónleika ásamt hinni stórkostlegu hljómsveit sinni. Þessir kappar heilluðu gesti hússins gjörsamlega upp úr skónum og þegar blásarahópurinn hélt í gönguferð út í salinn í lok tónleikanna og blés í leiðinni kröftuglega hið þekkta „When The Saints…“ ætlaði þakið bókstaflega að rifna af húsinu. Þakið hélt þó að þessu sinni enda ýmsu vant, en aldrei hefur önnur eins sveifla dunað í Sjallanum.“

Grenndargralið hafði samband við Björgvin Halldórsson og spurði hann út í heimsókn Fats Domino til Akureyrar og hvernig það kom til að hann sjálfur var með í för.

„Það eru margar sögurnar með Fats. Ég sá um komu hans til landsins sem og komu Jerry Lee Lewis. Það eru fleiri sögur af Fats þegar hann var í Reykjavík. Ég man bara eftir því þegar hann var á Akureyri, þá sagði hann mér persónulega að hann hefði alltaf haldið að Iceland væri í Nova Scotia. Hann stoppaði stutt á Akureyri. Ég var með einu einkaþotuna sem til var á landinu svo þetta var bara „in and out“ ferð.“

Áfram héldu lesendur Dags að láta í sér heyra á síðum blaðsins löngu eftir að Fats Domino kvaddi Akureyri. Viku eftir tónleikahaldið birtust eftirfarandi skilaboð frá manni sem hafði samband við lesendahorn blaðsins.

„Grátkerlingarnar sem vældu sem mest í þessum lesendadálki ykkar vegna þess að tónleikar Fats Domino í Sjallanum voru á virkum dögum en ekki um helgi eru nú þagnaðar og er það vel. Það er líka vonandi að þær haldi sig á mottunni næst þegar boðið verður upp á heimsfræga skemmtikrafta á Akureyri, þótt það verði í miðri viku. Þessi grátkonukór hafði hátt og ein kerlingin hvatti meira að segja fólk til að sitja heima, það væri ekki hægt að bjóða upp á þessa skemmtun þegar vinnudagur væri daginn eftir. Það var ekki þessi tónninn í Akureyringum þegar Ólafur Laufdal opnaði Sjallann með viðhöfn fyrir áramótin og bauð Akureyringum í hundraðatali til veislu. Þá gátu Akureyringar mætt þótt á fimmtudegi væri og annar hver maður var „på skallinn“. Nei þá var ekki vælt, en nú var sveitapólitíkin höfð uppivið. Það eina góða við þetta var það að grátkerlingarnar misstu af þessari frábæru skemmtun, það var gott á þær. Ég vil bara ráðleggja Akureyringum að hugsa málið næst.“

Antoine Dominique “Fats” Domino Jr. lést árið 2017. Hann var 89 ára gamall.

Á meðfylgjandi mynd má sjá Fats Domino (í hvítum frakka með kúrekahatt) með samferðamönnum við komuna til Akureyrar þann 2. febrúar 1987. Björgvin Halldórsson er lengst til vinstri. Myndin er fengin af síðunni samflug.com.

Sjá einnig Lesendahornið logaði vegna tónleika rokkgoðs í Sjallanum

Heimildir:

Grenndargralið

Fats Domino. (2021, 4. janúar). Wikipedia. https://en.wikipedia.org/wiki/Fats_Domino

Fyllerí og Fats Domino. [Lesendahornið – Alfreð hringdi] (1987, 2. febrúar). Dagur, bls. 5.

„Grátkórinn“ er þagnaður. [Lesendahornið – Gummi hringdi] (1987, 11. febrúar). Dagur, bls. 5.

Gylfi Kristjánsson. (1987, 29. janúar). „Aðsókn mætti vera meiri“. Dagur, bls. 12.

Stefán Sæmundsson. (1987, 3. febrúar). Fats Domino heilsaði með breiðu brosi. Dagur, bls. 1.

„Þetta læt ég ekki bjóða mér“. [Lesendahornið – Sjallagestur skrifar] (1987, 20. janúar). Dagur, bls. 5.

Mynd af Fats Domino og samferðamönnum á Akureyrarflugvelli: http://samflug.com/Aflug00.html

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó