Haraldur Logi við störf í Úkraínu

Haraldur Logi við störf í Úkraínu

Í síðustu viku hélt Haraldur Logi Hringsson lögreglumaður hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra til Úkraínu þar sem hann mun starfa með neyðarteymi Alþjóðasambands Rauða krossins (IFRC) vegna aðgerðar í tengslum við átökin í Úkraínu.

Haraldur Logi mun sinna öryggismálum, í stöðu Security Delegate í tengslum við starfsemi Rauða krossins og verður aðal starfsstöð hans í borginni Vinnytsia. Starfið mun meðal annars fela í að veita faglega ráðgjöf í öryggisáhættustjórnun (SRM – Security Risk management), uppfæra viðbragðsáætlanir, umsjón með framkvæmd verklagsreglna og öryggistilkynninga á starfsvæðinu ásamt því að greina öryggis-, pólitískar -, og efnahagslega stöðu á tilteknu svæði .  

Þetta er fyrsta  starfsferð Haraldar Loga fyrir Rauða krossinn á alþjóðavettvangi en hann hefur verið á viðbragðslista Rauða krossins á Íslandi í nokkur ár og hlotið viðeigandi þjálfun í tengslum við sína sérhæfingu innan Alþjóða Rauða krossins.   

Öllu jafna sinnir Haraldur störfum sem lögreglufulltrúi hjá lögregluembættinu á Norðurlandi Eystra.  Hann er með BA gráðu í lögreglu- og löggæslufræðum frá Háskólanum á Akureyri og MBA gráðu frá Háskóla Íslands.   

Lögregluembættið á Norðurlandi eystra veitti Haraldi Loga tímabundna lausn frá störfum í sínu embætti til þess að styðja við hjálparstarf Rauða krossins í Úkraínu.

Sambíó

UMMÆLI