Origo Akureyri

Hárið í Hofi á Akureyri

Hárið í Hofi á Akureyri

Föstudaginn 7. maí hefst forsala á tónleikasýningu á söngleiknum vinsæla Hárinu sem sýnd verður í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri laugardaginn 21. ágúst. Sýningin verður aðeins sýnd þetta eina kvöld og sætafjöldi því takmarkaður. Þetta er fyrsta sýning Rún viðburða sem er nýtt viðburðafyrirtæki á Akureyri.

Aðal áherslan þetta kvöld verður á tónlistina sem söngleikurinn er hvað þekktastur fyrir. Lögin vinsælu Að eilífu, Syndir holdsins (Lifi ljósið), Frank Mills, Saurlífi, Allir geta sært og fleiri verða á sínum stað, flutt af hópi frábærra söngvara og tónlistarmanna. 

Á sviðinu verða sjö leikarar, fimm manna hljómsveit og tíu manna kór. Leikarar í sýningunni eru Árni Beinteinn, Birgir Sævarsson, Egill Andrason, Ívar Helgason, Jónína Björt Gunnarsdóttir, Rán Ringsted og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir.

Leikstjóri sýningarinnar er Jenný Lára Arnórsdóttir, tónlistarstjóri Guðjón Jónsson og framleiðandi fyrir hönd Rún viðburða er Jónína Björt Gunnarsdóttir. Kór sýningarinnar er Sönghópurinn Rok

Forsala á söngleikinn er á tix.is og verður sérstakt forsölutilboð verður fyrsta daginn.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó