Háskóladagurinn haldinn á Akureyri

Háskóladagurinn haldinn á Akureyri

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra mun opna Háskóladaginn sem haldinn verður laugardaginn 19. mars kl. 12-15 í Háskólanum á Akureyri. Þá gefst áhugasömum tækifæri til að kynna sér allt háskólanám sem er í boði á landinu á einum vettvangi.

Starfsfólk og nemendur allra háskóla landsins verða til í spjall við gesti um hvaðeina sem viðkemur námsvali og háskólalífinu. Mikið verður um dýrðir og verða t.a.m. vísinda- og listasmiðjur í boði fyrir gesti og gangandi. Sprengju-Kata útbýr dularfullar og litríkar efnablöndur og boðið verður upp á forritun Lego-vélmennis á þrautaborði. Þá verður hægt að þreyta þrekpróf, tæta sundur tölvur og setja saman aftur og prófa sig við allskyns námsleiðir.

„Við erum rosalega ánægð með að geta haldið daginn á Akureyri. Fyrir tveimur árum þurftum við að aflýsa deginum með skömmum fyrirvara og í ár skipulögðum við daginn stafrænan þar sem enn var mikil óvissa í stefnu faraldursins. Það er því mikið gleðiefni að geta haldið daginn í Háskólanum á Akureyri með þátttöku allra íslenskra háskóla. Þetta er einstakt tækifæri fyrir áhugasama á svæðinu að kynna sér háskólanám,“ segir Sigrún Einarsdóttir, verkefnastjóri Háskóladagsins. 

Það er von skipuleggjenda Háskóladagsins að áhugasamir nýti sér tækifærið og skoði vandlega það úrval námsleiða sem íslenskir háskólar hafa uppá að bjóða.

Facebook-viðburður: https://fb.me/e/35uHVvKzI

Vefsíða Háskóladagsins: www.haskoladagurinn.is

UMMÆLI