Hátíðarhöld á Sjómannadaginn falla niður á Akureyri

Hátíðarhöld á Sjómannadaginn falla niður á Akureyri

Í ljósi óvissu sem skapaðist í kringum Covid-19 faraldurinn ákváðu aðstandendur Sjómannadagsins að bjóða ekki til opinberra hátíðarhalda á þessu ári. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu Akureyrarbæjar.

Undanfarin ár hefur Sjómannafélag Eyjafjarðar staðið fyrir hátíðarhöldum á Sjómannadaginn í samstarfi við Akureyrarbæ og fleiri aðila. Vegna Covid-19 faraldursins og takmarkana sóttvarnaryfirvalda var óvissa í aðdragandanum mikil að þessu sinni og ekki hægt að ganga út frá að mannsöfnuður yrði heimill.

Þá hafa Hollvinir eikarbátsins Húna II staðið fyrir hátíðarsiglingu smábáta inn á Pollinn og boðið almenningi upp á siglingar á þennan dag. Nú vill svo til að Húni verður í slipp og því munu Hollvinir bjóða upp á siglingar fyrir almenning síðar í sumar þegar góð tækifæri gefast til.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó