Hátíðisdagur í Síðuskóla sem fékk Grænfánann í áttunda sinn

Hátíðisdagur í Síðuskóla sem fékk Grænfánann í áttunda sinn

Það var hátíðisdagur í Síðuskóla í gær þegar Grænfáninn var dreginn að húni í áttunda sinn. Síðuskóli hefur verið Grænfánaskóli frá árinu 2006 og í fyrravor var stefnan að fá fánann í áttunda sinn en vegna samkomutakmarkana var ákveðið að fresta því. Þetta kemur fram í tilkynningu Akureyrarbæjar.

Skólar á grænni grein er alþjóðlegt umhverfismenntarverkefni sem rekið er af Landvernd á Íslandi. Markmið Grænfánaverkefnisins er að auka umhverfismennt, sjálfbærni og styrkja umhverfisstefnur skóla. Meirihluti leikskóla Akureyrarbæjar og nokkrir grunnskólar taka þátt og hafa gert um nokkurt skeið. 

„Það var kærkomin stund í gær þegar Guðrún Schmidt fulltrúi Landverndar afhenti viðurkenninguna og var ákveðið að blása til hátíðar utandyra í sumarblíðu,“ segir í tilkynningu bæjarins.

Þema skólans fyrir umsókn um fánann var lýðheilsa. Heildarútkoma úttektarinnar er eftirfarandi:

Síðuskóli var með víðtæk markmið í tengslum við lýðheilsu og úrgang og fann fjölbreyttar leiðir til þess að vinna að þeim. Starfsfólk í grænfánanefnd og verkefnastjóri eru áhugasöm og kraftmikil og greinilegt að verkefnið nær að valdefla nemendur. Í Síðuskóla er unnið flott starf í menntun til sjálfbærni og hvetjum við ykkur til áframhaldandi góðra verka. Þið hafið náð þeim góða árangri að fá grænfánann afhentan í 8. sinn. Innilega til hamingju með það!

Hér er hægt að skoða myndir frá Grænfánahátíðinni í Síðuskóla í gær. 

Sambíó

UMMÆLI