Hátt í 50 sóttu um stöðu verkefnastjóra í HofiMenningarhúsið Hof. Mynd: mak.is

Hátt í 50 sóttu um stöðu verkefnastjóra í Hofi

Hátt í 50 umsóknir bárust í auglýsta stöðu verkefnastjóra Menningarhússins Hofs. Um nýtt stöðugildi er að ræða. Umsóknarfrestur rann út 2. júní.

„Á næstu dögum verður farið yfir umsóknirnar og umsækjendur kallaðir í viðtöl. Áætlað er að nýr verkefnastjóri hefji störf í september,“ segir í tilkynningu.

Þá bárust yfir 80 umsóknir í starf kaffibarþjóns og hafa tveir þegar verið ráðnir. Barr kaffihús í Hofi opnar á næstu dögum.

Sjá einnig: Barr Kaffihús opnar í Hofi


UMMÆLI

Sambíó