Akureyringurinn Klara Sif Magnúsdóttir segist hafa grætt fimmtán milljónir króna á því að selja djarfar myndir af sér á vefsíðunni Only Fans. Klara var gestur í hlaðvarpsþáttunum Eigin konur á dögunum þar sem hún ræddi meðal annars samfélagsmiðlana Only Fans og TikTok.
Klara bjó til aðgang á Only Fans í ágúst á síðasta ári en hún segir að hún hafi ekki búist við því að græða svona mikið á því. Hún segir að flestir sínir fylgjendur séu íslenskir karlmenn þó svo að það fylgi henni líka erlendir karlmenn og konur.
Only Fans er vettvangur þar sem hver sem er getur selt myndir, myndbönd, tónlist eða list. Undanfarin ár hefur færst í aukana að fólk sé að selja nektarmyndir og myndbönd í gegnum miðilinn. Notendur geta svo keypt áskrift að ákveðnum rásum.
Klara var gestur í útvarpsþættinum Brennslunni í gær og hún segir að hún hafi fengið rosalega góð viðbrögð síðan hún opnaði sig í hlaðvarpsþættinum Eigin konur. Hún segist meðal annars hafa fengið stuðning frá foreldrum sínum.
„Mamma var bara rosalega hress með þetta og hún hefur alltaf stutt mig í því sem ég vill gera, og það var í raun það sama með pabba,“ segir Klara í Brennslunni.
Þú getur hlustað á viðtalið við Klöru úr Brennslunni í heild sinni með því að smella hér.
UMMÆLI