Origo Akureyri

Heiðar Örn gerir athugasemdir við afsökunarbeiðni Samherja

Heiðar Örn gerir athugasemdir við afsökunarbeiðni Samherja

Heiðar Örn Sigurfinnsson, varafréttastjóri RÚV, segir að með afsökunarbeiðni Samherja sem birtist á vef félagsins í gær kveði við nýjan tón frá sjávarútvegsfyrirtækinu. Hann segir að þó að það sé gott og að hann voni að framhald verði þar á gerir hann athugasemdir við afsökunarbeiðnina sem virðist ekki vera mjög skýr að hans mati.

Sjá einnig: Samherji sendir frá sér afsökunarbeiðni

„Í fyrsta lagi er ekki mjög skýrt hver er að biðjast afsökunar. Það er enginn skrifaður fyrir þessari afsökunarbeiðni – einungis sagt að Samherji vilji biðjast afsökunar á framgöngu ótilgreindra stjórnenda fyrirtækisins. Hvers vegna eru það ekki stjórnendurnir sjálfir sem biðjast afsökunar á framgöngu sinni?“ skrifar Heiðar á Facebook.

Hann segir einnig ekki vera skýrt á hverju sé verið að biðjast afsökunar á. „Þar segir eingöngu að það sé ljóst að of langt hafi verið gengið í harkalegum viðbrögðum við „neikvæðri umfjöllun“ og á þeirri framgöngu vilji fyrirtækið biðjast afsökunar. Hvaða harkalegu viðbrögð er átt við? Eru það myndböndin sem framleidd voru þar sem fréttamenn Kveiks voru meðal annars sakaðir um að falsa skjöl til stuðnings umfjöllun sinni? Eru tilraunir til að hafa af fjölmiðlafólki æruna? Er það „spæjarinn“ sem elti Helga Seljan á röndum, sat fyrir honum á kaffihúsi og sendi ógnandi sms? Eru það njósnir um aðra fjölmiðlamenn og listamenn? Er það kannski allt þetta eða eitthvað annað sem ekki hefur komið fram í opinberri umræðu?“

Að lokum segir hann að það sé ekki skýrt hvern sé verið að biðjast afsökunar þar sem það sé óljóst á hverju sé verið að biðjast afsökunar á.

„Er verið að biðja Helga Seljan afsökunar? Eða allan almenning? Eða kannski bara starfsfólk Samherja?Kannski hefði þessi afsökunarbeiðni verið betri ef það væri skýrara hver væri að biðja hvern afsökunar og á hverju. Eins og fram kom í frétt RÚV í kvöld þá vildi forstjóri Samherja ekki veita viðtal til að skýra það. Ekki frekar en hann hefur viljað veita viðtöl til að svara þeim ásökunum sem settar hafa verið fram.“

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó