Prenthaus

Heimildarmynd um Íslandsmeistara KA/Þór á N4

Heimildarmynd um Íslandsmeistara KA/Þór á N4

Sjónvarpsstöðin N4 hefur unnið heimildarmynd um veturinn hjá Íslandsmeisturum KA/Þór. Heimildarmyndin Meistarar verður sýnd miðvikudagskvöldið 30. júní á N4 sjónvarp.

„Handboltastelpurnar  í KA/Þór áttu stórkostlegt keppnisár og draumurinn um Íslandsmeistaratitilinn er orðinn að veruleika.  Eftir mikla uppbyggingu og vinnuframlag leikamanna, þjálfara, foreldra, stuðnings- og stjórnarmanna er ekki annað hægt en að skyggnast bak við tjöldin og kynnast meisturunum örlítið betur.  N4 hefur unnið að heimildarmynd um gullstelpurnar,“ segir í tilkynningu frá N4.

Í myndinni kynnast áhorfendur Íslandsmeisturunum betur, ekki bara á vellinum heldur líka í sínu daglega lífi en þremur liðsmönnum er fylgt eftir þeim Rakel Söru, Mörthu Hermanns og Huldu Tryggva.

Þá er rætt við þjálfarann Andra Snæ, Siguróla Sigurðsson, íþróttafulltrúa KA, sem og tvo fulltrúa úr Stjórn kvennaliðsins. Gullstelpunum er fylgt eftir á handboltaæfingu og styrktaræfingu hjá Agli Ármanns í TFW.

„Áhorfendum gefst kostur á því að vera á fluga á vegg innan um liðið og sjá með eigin augum hvað liðið býr yfir góðum liðsanda og frábærum karakter.“

Börnin með á æfingar

Í myndinni sést meðal annars hvernig fjölskyldulífið tvinnast við handboltann en sumar kvennanna í liðinu taka börnin sín með á æfingar og eru börnin alvön því að taka þátt.

Þá er fjallað um kostnaðinn við að rekstur liðsins.  Siguróli íþróttafulltrúi KA segir í myndinni að 85 prósent af kostnaðinum komi úr fjáröflunum sem þýðir að leikmenn og sjálfboðaliðar þurfa að leggja mikið á sig í fjáröflunum til þess að láta dæmið ganga upp.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó