Helga Björg ráðin tímabundið sem framkvæmdastjóri ÍBA

Helga Björg ráðin tímabundið sem framkvæmdastjóri ÍBA

Helga Björg Ingvadóttir hefur verið ráðin tímabundið sem framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Akureyrar. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef ÍBA. 

Þar segir að ráðningin sé til komin vegna veikindaleyfis framkvæmdastjóra bandalagsins, Helga Rúnars Bragasonar. Helga Björg kemur til starfa á næstu dögum en hún verður í hlutastarfi út janúar 2023 en kemur svo í fullt starf þann 1. febrúar.  Ráðning Helgu Bjargar er til 31. október 2023.

Helga Björg er með BSc gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík, auk mastersgráðu í forystu og stjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Hún hefur einnig lokið prófi í verðbréfaviðskiptum frá Háskólanum í Reykjavík.

Helga Björg hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu og starfaði lengst af sem sjóðsstjóri hjá verðbréfafyrirtækjum bæði í Reykjavík og á Akureyri og hefur því hlotið víðtæka reynslu af fjármálamörkuðum bæði hér heima og erlendis. Nú síðast starfaði hún sem sérfræðingur hjá Gallup. 

Helga Björg hefur í gegnum tíðina verið virk í íþróttastarfinu á Akureyri. Hún spilaði handbolta lengi vel með KA og síðar KA/Þór. Hún hefur tekið virkan þátt í íþrótta- og félagsstörfum í kringum íþróttaiðkun barna sinna hjá hinum ýmsu íþróttafélögum á Akureyri og situr meðal annars í stjórn yngriflokkaráðs KA.

UMMÆLI

Sambíó