Helga Bragadóttir ráðin prestur í Glerárprestakalli

Helga Bragadóttir ráðin prestur í Glerárprestakalli

Helga Bragadóttir hefur verið ráðin prestur til þjónustu í Glerárprestakalli, Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi. Umsóknarfrestur vegna stöðunnar rann út 17. júlí síðastliðinn.

Miðað var við að viðkomandi gæti hafið störf 1.september 2022, en í síðasta lagi þremur mánuðum eftir að niðurstaða um ráðningu lægi fyrir.

Valnefnd kaus Helgu Bragadóttur mag. theol til starfans og hefur biskup Íslands, sr. Agnes M. Sigurðardóttir, staðfest ráðningu hennar.

Helga Bragadóttir er fædd árið 1991 á Akranesi og ólst upp á Siglufirði og síðar í Hafnarfirði. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 2011 og hóf nám við guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands haustið 2014.

Helga útskrifaðist með mag. theol.-próf frá Háskóla Íslands veturinn 2021. Hún lauk framhaldsmenntun í sálgæslu hjá Endurmenntun Háskóla Íslands vorið 2022.

Helga hefur starfað í unglingastarfi og sunnudagaskóla í Grafarvogskirkju og í barnastarfi og sunnudagaskóla í Víðistaðakirkju ásamt því að gegna starfi kirkjuvarðar í afleysingum.

Sambýliskona Helgu er María Ósk Jónsdóttir, grafískur hönnuður hjá Já. Þær eiga fimm ára gamlan dreng.

Helga er þriðji ættliðurinn sem vígist til prestsþjónustu. Faðir hennar sr. Bragi J. Ingibergsson er sóknarprestur í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði, áður á Siglufirði og afi hennar sr. Ingiberg J. Hannesson fv. prófastur þjónaði alla sína starfsævi í Dölunum.

Prestakallið er í sveitarfélaginu Akureyrarkaupstað. Í því er ein sókn, Lögmannshlíðarsókn. Sóknin er á samstarfssvæði með Akureyrarsókn, sem myndar Akureyrar- og Laugalandsprestakall.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó