Hinn handtekni sagður samstarfsfús

Hinn handtekni sagður samstarfsfús

Rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra vegna andláts ungrar konu á Akureyri stendur enn yfir. Konan fannst látin á heimili sínu á sunnudag. Lögreglan er með mann í haldi sem var á staðnum þegar konan lést.

Lögreglan segir manninn sem er í gæsluvarðhaldi samstarfsfúsan en hann er grunaður um að hafa ekki komið konunni til hjálpar. Talið er að maðurinn hafi látið sig hverfa þegar faðir konunnar kom á heimilið á sunnudagsmorgninum.

Maðurinn var yfirheyrður í annað skipti síðdegis í gær. Ekki var hægt að yfirheyra hann á sunnudag vegna lyfjaáhrifa. Gæsluvarðhald yfir honum rennur út á hádegi á morgun en ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort það verði framlengt.

Dánarorsök konunnar liggur ekki enn fyrir. Bráðabirgðaniðurstaða krufningar liggur fyrir en niðurstöður eiturefnarannsóknar er beðið.

UMMÆLI

Sambíó