Hleypur 310 kílómetra til styrktar kvennaknattspyrnu á Akureyri

Hleypur 310 kílómetra til styrktar kvennaknattspyrnu á Akureyri

Haraldur Ingólfsson ætlar að hlaupa 310 kílómetra í apríl og safna pening til að styrkja rekstur knattspyrnuliða Þórs/KA og Hamranna. Þetta kemur fram á vef thorsport.is í dag.

Verkefnið sem hefst á miðvikudaginn, 1. apríl, hefur fengið heitið „Halli hleypur apríl“ og er markmið hans að ná að klára 310 kílómetra í aprílmánuði en það gerir um 10 kílómetra á dag.

Á thorsport.is segir að upphaf verkefnisins megi rekja til þess að leikmenn liðanna buðu sokka til sölu í febrúar og mars í fjáröflunarskyni og ákvað Halli að hlaupa einn kílómetra fyrir hvert selt par. Skemmst er frá því að segja að stelpurnar seldu 310 pör. Það liggur því fyrir að hann þarf að hlaupa rúmlega 10 kílómetra að meðaltali á dag allan mánuðinn.

Nokkrar leiðir eru í boði til að styrkja verkefnið:

  1. Leggja beint inn á hans eigin reikning – 0566-26-2777, kt. 2806632639. Skil á því fé sem kemur inn á reikning hans verða gerð undir eftirliti framkvæmdastjóra Þórs. 
  2. Mögulegt er að skrá áheit á sérstakri síðu og fá síðan kröfu í heimabanka með gjalddaga 1. maí.
  3. Stofnuð hefur verið fjársöfnunarsíða á Sportfunder þar sem hægt verður að skrá sig og greiða með kreditkorti, en smá hluti af upphæðinni rennur í kostnað til fyrirtækisins sem rekur viðkomandi vef.
  4. Leggja má beint inn á reikning Styrktarfélags Þórs/KA: 0566-26-6004, kt. 6409091020. Setjið til dæmis „hlaup“ eða „Halli“ í skýringu.
  5. Við lok verkefnisins verður hugsanlega eitthvað húllumhæ, auðvitað háð stöðu og lengd samkomubanns. Við það tækifæri verður vonandi mögulegt að skreppa í Hamar og renna korti í posa. Sjáum til hvernig málin þróast. 

Upplýsingar um verkefnið eru veittar í haralduringolfsson[at]gmail.com eða síma 824 2778. 

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó