![Stefnt er á opnun í Hlíðarfjalli 1. desember](http://www.kaffid.is/wp-content/uploads/2016/11/Hlidarfjall_16april08_2.jpg)
Allir í fjallið!
Skíðaunnendur fá heldur betur góða jólagjöf frá Hlíðarfjalli því á morgun, mánudaginn 26.desember, mun loksins opna í fjallinu og er þetta fyrsta opnun vetrarins í Hlíðarfjalli.
Upphaflega var stefnt að því að opna 1.desember en þar sem afar lítið hefur snjóað á Akureyri í vetur hefur það ekki tekist hingað til.
Stefnt er að því að hafa Fjarkann opinn frá klukkan 12-16 og að auki verður troðinn stuttur hringur fyrir gönguskíðafólk.
UMMÆLI