Hljómsveitin Toymachine safnar fyrir plötu: „Alltaf setið fast í okkur að hafa ekki komið út okkar eigin plötu“

Hljómsveitin Toymachine safnar fyrir plötu: „Alltaf setið fast í okkur að hafa ekki komið út okkar eigin plötu“

Meðlimir hljómsveitarinnar Toymachine, sem var stofnuð á Akureyri síðla árs 1996, þá undir nafninu Gimp, hafa sett af stað söfnun inn á Karolina Fund til að safna fyrir gerð á breiðskífu.

Meðlimir Toymachine stefna á útgáfu um mánaðarmótin nóvember og desember þessa árs og verður um 10 til 11 laga plötu að ræða sem geymir mest megnis lög úr smiðju bandsins frá árunum 1999-2001. Stykkið verður gefið út á vínyl og á öllum helstu streymisveitum.

Um tveimur árum eftir stofnun Gimp breyttu meðlimir bandsins nafninu í Toymachine. Á sama tíma þyngdist tónn þeirra og einn meðlimur bættist í hópinn. Sveitin spilaði víða næstu árin, meðal annars í flugskýli númer 4 á Reykjavíkurflugvelli árið 1999 á fyrstu Iceland Airwaves hátíðinni. Sveitin spilaði í kjölfarið á hinum goðsagnakennda tónleikastað CBGB´s á Manhattan í New York enda var stefnan sett á heimsyfirráð.

Sveitin var hvað virkust til ársins 2001 en það ár kom hún fram á sínum lokatónleikum sem fram fóru í Íþróttahöllinni á Akureyri ásamt Jet Black Joe. Aldrei náði bandið að koma út sinni eigin plötu en þó átti hún tvö lög á safnplötunni MSK (1999) og lagið Be Like Me í bíómyndinni „Óskabörn þjóðarinnar“ árið 2000, en það sama ár var Toymachine tilnefnd til íslensku tónlistarverðlaunanna sem bjartasta vonin en laut í lægra haldi fyrir MÚM.

Nú hafa meðlimir Toymachine sett af stað söfnun inn á Karolina Fund þar sem það á að freista þess að safna fyrir gerð plötunnar sem aldrei kom út.

Trommari Toymachine er hinn góðkunni leikstjóri Baldvin Z og söngvari er Jens Ólafsson sem hefur gert garðinn frægan í hljómsveitinni Brain Police síðustu 20 ár, eða allt frá því Toymachine hætti formlega störfum. Aðrir meðlimir eru þeir Kristján Elí Örnólfsson gítarleikari og Atli Hergeirsson bassaleikari. Þá starfaði Árni Elliott í bandinu á árunum 1999-2001 sem meðsöngvari og plötusnúður.

„Það hefur alltaf setið fast í okkur að hafa ekki komið út okkar eigin plötu á sínum tíma. Við eigum gríðarlega mikið efni til sem okkur finnst hafa elst afskaplega vel og við eigum aðeins til á fjölmörgum „demo“ upptökum. Núna viljum við endilega bæði eiga það til fyrir okkur sjálfa í góðum hljómgæðum sem og viljum við deila þessu efni með öðrum enda þrusu gott stöff þó við segjum sjálfir frá,“ segir Atli Hergeirsson.

Hann bætir því við að þótt ótrúlegt megi virðast sé sveitin í ágætis spilaformi.

„Auðvitað er Jens kannski í mesta forminu en við hinir komum skammt á eftir hvað það varðar. En við höfum verið að koma fram nokkrum sinnum síðustu 5 árin og höfum ávallt náð að slípa okkur vel saman fyrir tónleika. Okkar mottó sem hljómsveit hefur verið síðustu árin „Book them and they will come“ og að þessu sinni verður engin breyting þar á. Við munum allir sem einn mæta meira en tilbúnir í leikinn á fyrsta degi upptöku.“

Hann segir að aðdáendur megi búast við alvöru rokkplötu og að sveitin muni leita í rætur sínar við lagaval.

„Við betrumbætum svo það sem þarfnast slíks, en til þess höfum við fengið til liðs við okkur einvala lið til að hjálpa okkur bæði við upptökur og útsetningar. Við tökum okkur dágóðan tíma í verkið og viljum skila af okkur plötu sem við getum verið stoltir af um ókomna tíð. Við setjum miklar kröfur á okkur sjálfa við gerð þessarar plötu og fólk verður vonandi ekki svikið af hvorki henni né útgáfutónleikunum okkar sem við munum halda samhliða útgáfunni og verða allir hinir glæsilegustu.“

Með því að smella hér getur þú lesið nánar um verkefnið og stutt við það.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó