Origo Akureyri

Höldur-Bílaleiga Akureyrar styður Baldvin Þór

Höldur-Bílaleiga Akureyrar styður Baldvin Þór

Höldur-Bílaleiga Akureyrar hefur gert styrktarsamning við einn fremsta hlaupara Íslands, Baldvin Þór Magnússon. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu Höldurs.

Baldvin er einn allra sterkasti millivegalengda- og langhlaupari sem Ísland hefur átt. Hann hefur náð framúrskarandi árangri á undanförnum árum í hlaupum frá 1.500 metra og upp í 10 kílómetra hlaup. Hann á sem stendur fjórtán virk Íslandsmet, sex í yngri aldursflokkum og átta í flokki fullorðinna.

Baldvin setti fimm Íslandsmet á síðasta ári og hefur þegar sett eitt Íslandsmet á þessu ári þegar hann bætti 44 ára gamalt Íslandsmet í 1.500 metra hlaupi innanhúss.

Baldvin Þór var nýverið útnefndur Íþróttakarl Akureyrar en hann er fæddur á Akureyri og bjó þar fyrstu árin en flutti þá til Bretlands með foreldrum sínum. Hann fór á íþróttastyrk til Bandaríkjanna í háskólanám og æfði þar og keppti í fimm ár. Hann hefur nú snúið aftur til Bretlands og æfir þar með sterkum hópi hlaupara.

„Baldvin Þór stefnir ótrauður á að komast á Ólympíuleikana í París í sumar í 5.000 metra hlaupi og það er Höldi-Bílaleigu Akureyrar sannur heiður að hjálpa Baldvin Þór að láta þann draum rætast,“ segir í tilkynningu Höldurs.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó