Hörður styrkir Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis

Hörður styrkir Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis

Hörður Óskarsson færði Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis, Kaon, 505 þúsund krónur á dögunum. Þetta kemur fram í frétt á vef Kaon.

„Hörður hefur verið reglulegur styrktaraðili við félagið í gegnum árin. En styrkina veitir hann til minningar um bróður sinn Sigurð Viðar Óskarsson, en hann lést úr krabbameini árið 2010. Hörður smíðar fallegt skart úr gamalli mynt sem hann selur undir merkjum Mynthringar og allskonar á Facebook. Hann hefur smíðað slaufumen úr myntinni sem hafa fengið frábærar móttökur og hluti af ágóðanum rennur til félagsins,“ segir í frétt Kaon.

Í mars seldi Hörður mottu – barmnælur í tilefni af Mottumars. Hörður smíðar nælurnar úr mynt – gömlum einnar krónu og fimm krónu peningum og kallar Myntmottur. Mottan kostar 4.900 kr. og 2.500 kr. renna beint til félagsins.

Kælismiðjan Frost tók sig til gaf öllum starfsmönnum sínum, um 100 talsins,  mottu-barmnælur í tilefni af Mottumars.

„Guðmundur framkvæmdastjóri Frosts hvetur alla til þess að leggja þessu góða málefni lið. Stuðningur almennings og fyrirtækja við forvarnir krabbameinsfélaganna og að styðja fólk sem greinist með krabbamein og aðstandendur þeirra skipti gríðarlega miklu máli.“

Vert er að geta þess að Myntmottur Harðar eru til sölu hjá Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis og í vefverslun Krabbameinsfélagsins. Einnig er hægt að panta þær í gegnum Facebook síðu Harðar.

Starfsfólk Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis og stjórn þakkar Herði kærlega fyrir ómetanlegan stuðning í gegnum árin.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó