Prenthaus

Hörður viðurkennir brot gegn Jódísi

Hörður viðurkennir brot gegn Jódísi

Hörður J. Oddfríðarson dagskrárstjóri göngudeildar SÁÁ á Akureyri gengst við því að vera sá einstaklingur sem misnotaði yfirburðarstöðu sína gagnvart Jódísi Skúladóttur þingkonu Vinstri grænna. Þetta kemur fram á vef Stundarinnar.

Jódís sagði frá því á Facebook á dögunum að maður sem hefði misnotað yfirburðastöðu sína gagnvart henni hefði tekið á móti henni þegar hún var send í eftirmeðferð á Staðarfelli þremur árum síðar. Hún hafi verið 17 ára þegar Hörður misnotaði yfirburðastöðu sína gagnvart henni og hann þrítugur.

„Þegar ég mætti með rútunni í eftirmeðferð á Staðarfell í Dölum tók á móti mér maður sem var kanóna innan SÁÁ, sá sami hafði misnotað yfirburðaðstöðu sína gagnvart mér þrem árum fyrr. Ég hafði þá verið 17 ára, hann 30 ára. Hann, edrú, gaf mér áfengi, káfaði á mér og tróð tungunni upp í mig. Ég forðaði mér en hann mætti heim til mín um nóttina og vildi komast inn,“ skrifaði Jódís á Facebook.

Hörður hefur nú sagt sig frá ýmsum starfsskyldum, sem formaður fulltrúaráðs Samfylkingarinnar og úr stjórn Sundsambands Íslands. Þá er hann kominn í leyfi frá störfum sínum hjá SÁÁ.

Í yfirlýsingu sem Hörður sendi fjölmiðlum upp úr klukkan fjögur í dag þar sem hann segir að þremur árum eftir þetta atvik hafi Jódís farið í meðferð þar sem hann hefði tekið á móti henni, þá orðinn starfsmaður SÁÁ. Hann hafi sjálfur farið í meðferð skömmu eftir að þetta atvik átti sér stað og hafið störf hjá samtökunum skömmu síðar. Hér að neðan má sá yfirlýsingu Harðar.

Yfirlýsing varðandi sögu Jódísar Skúladóttur alþingismanns 

Jódís Skúladóttir, þingmaður VG, hefur greint frá atviki sem hún varð fyrir þegar hún var sautján ára og undirritaður þrítugur. Þremur árum eftir þetta atvik átti sér stað fór hún í meðferð og þá tók ég á móti henni, þá orðinn starfsmaður SÁÁ. 

Ég fór sjálfur í meðferð skömmu eftir að þetta atvik átti sér stað og hóf störf hjá samtökunum skömmu síðar.  

Ég rengi ekki frásögn Jódísar á nokkurn hátt og bið hana afsökunar því sem gerðist og þeim afleiðingum sem það hefur haft fyrir hana.  

Ég er í samtali við mína yfirmenn hjá SÁÁ um framtíð mína og hef óskað eftir því að úttekt verði gerð á mínum störfum þar sl. 25 ár.     

Akureyri 27. janúar 2022 

Hörður J. Oddfríðarson

Sambíó

UMMÆLI