Origo Akureyri

Hulda Björg fékk KollubikarinnArna, Hulda Björg og Ágústa. Mynd:thorka.is

Hulda Björg fékk Kollubikarinn

Kollubikarinn – sem veittur er í minningu Kolbrúnar Jónsdóttur – var afhentur í sjöunda sinn á lokahófi Þórs/KA á laugardagskvöldið. Hulda Björg Hannesdóttir fyrirliði Þór/KA fékk Kollubikarinn 2022. Þetta kemur fram á vef Þór/KA.

„Kollubikarinn er veittur til minningar um Kolbrúnu Jónsdóttur, fyrrverandi leikmann og stjórnarmann Þór/KA. Við val á þeim leikmanni sem hlýtur Kollubikarinn eru hafðir til hliðsjónar eiginleikar sem prýddu Kollu sjálfa, áræðni, harka og dugnaður, svo einhverjir séu nefndir. Það er stjórn Þórs/KA sem velur þann leikmann sem fær Kollubikarinn hverju sinni. Kolbrún starfaði lengi í kvennaráði Þórs/KA, en lést á árinu 2016, langt fyrir aldur fram,“ segir á vef Þór/KA.

Við afhendinguna var meðal annars lesin upp umsögn um Huldu Björg frá liðsfélaga hennar sem hljómar svona: 

Hulda er liðsfélaginn sem að þú myndir taka mér þér í stríð. Hún rífur þig áfram þegar þú ert að gefast upp, hrósar þér þegar þú ert að standa þig vel og lætur þig vita þegar þú þarft að gera betur. Eins og sannur leiðtogi á að vera. Hulda leggur sig alltaf fram, gerir aðra betri í kringum sig og er yndisleg manneskja. Allir vilja hafa eina Huldu í sínu liði!

Handhafar Kollubikarsins frá upphafi:
2016: Karen Nóadóttir
2017: Sandra María Jessen
2018: Arna Sif Ásgrímsdóttir
2019: Lára Einarsdóttir
2020: Heiða Ragney Viðarsdóttir
2021: Harpa Jóhannsdóttir
2022: Hulda Björg Hannesdóttir

Dætur Kollu afhentu bikarinn

Þær Ágústa Kristinsdóttir og Arna Kristinsdóttir, sem hafa báðar komið mikið við sögu hjá Þór/KA, afhentu bikarinn í ár. Ágústa lék um árabil með Þór/KA og starfar nú sem þjálfari hjá félaginu. Arna Kristinsdóttir hefur leikið bæði með Þór/KA og Hömrunum, ásamt því að hafa farið á lánssamningi til Tindastóls.

Sambíó

UMMÆLI