Hvetja bæjarbúa til að hreinsa til í bænum

Mynd: Akureyri.is

Akureyrarbær hvetur bæjarbúa til að taka höndum saman við að hreinsa til í bænum eftir veturinn og taka á móti sumrinu með brosi á vör. Sérstök hreinsunarvika hófst í dag og stendur til 15. maí. Gámar fyrir garðaúrgang eru í hverfum bæjarins frá 5. maí til 15. maí. Þeir eru á eftirtöldum stöðum:

  • Kaupangur
  • Hagkaup
  • Hrísalundur
  • Bónus við Kjarnagötu
  • Bónus við Langholt
  • Aðalstræti sunnan Duggufjöru
  • Bugðusíð við leiksvæði
  • Verslunarmiðstöðin Sunnuhlíð

Einnig er tekið við garðaúrgangi o.fl. á gámasvæði við Réttarhvamm og á móttökustöðinni Hlíðarvöllum við Rangárvelli. Í samvinnu við hestamenn verða gámar fyrir rusl í hesthúsahverfum bæjarins frá 15. maí til 31. maí.

Akureyrarbær hefur stundum fengið sæmdarheitið “fegursti bær landsins” en til þess að hann verðskuldi það þurfa allir að leggjast á eitt og taka til í sínum ranni. Það er samfélagsleg skylda okkar sem í þessum bæ búum að ganga vel um og koma í veg fyrir sóðaskap sem hlýst af uppsöfnuðu rusli.

Með því að hreinsa rusl og snyrta tré og runna í garðinum okkar hvetjum við aðra til að taka til hendinni. Stígum endilega skrefinu lengra og tínum rusl utan lóðarmarka, við næsta göngustíg og/eða á nálægu útivistarsvæði. Hreinsunardagur í götunni eða í hverfinu býður upp á skemmtilega samveru. Notum hugmyndaflugið og gerum tiltektina að skemmtilegu verkefni.

Opnunartímar gámasvæðis við Réttarhvamm:

Frá 16. ágúst til 15. maí:

Mánudaga til föstudaga kl. 13-18.

Laugardaga og sunnudaga kl. 13-17.

Frá 16. maí til 15. ágúst:

Mánudaga til föstudaga kl. 13-20.

Laugardaga og sunnudaga kl. 13.-17.

UMMÆLI

Sambíó