„Í besta falli ýkjur“ að soðið hafi upp úr á súpufundi Þórsara

„Í besta falli ýkjur“ að soðið hafi upp úr á súpufundi Þórsara

Þeir Sigfús Ólafur Helgason, Nói Björnsson og Páll Jóhannesson, skipuleggjendur súpufunds sem Þór hélt á dögunum, hafa sent frá sér yfirlýsingu á vef félagsins vegna fréttar sem birtist á hjá Mannlífi í gær þar sem fjallað er um fundinn.

Í tilkynningu þeirra segir að það sé óhjákvæmilegt að gera athugasemdir við fréttaflutning Mannlífs en fyrirsögn fréttar Mannlífs er: Upp úr sauð á fundi Vöndu hjá knattspyrnudeild Þórs: Móðir Arons Einars fékk engin svör.

Í frétt Mannlífs segir að samkvæmt heimildarmanni sem hafi verið á meðal gesta hafi móðir Arons Einars spurt einfaldra spurninga sem Vanda hafi ekki viljað svarað.

„Við, undirritaðir þurfum ekki að svara fyrir Vöndu eða verja hana á nokkurn hátt, en þar sem fundurinn var á ábyrgð okkar og Þórs er rétt að upplýsa að Vanda svaraði bæði þeirri spurningu hvort hún hefði hringt í Aron Einar, og hvort hún myndi beita sér fyrir því að hann fengi ekki inn í landsliðið aftur.“

„Upplifun fólks af fundi sem þessum getur að sjálfsögðu verið mismunandi en að halda því fram að upp úr hafi soðið á fundinum eru í besta falli ýkjur að okkar mati,“ segir í tilkynningu skipuleggjenda.

Þá eru aðrar villur í fréttinni leiðréttar. Til að mynda heldur Mannlíf því fram að tilefni súpufundar Þórsara hafi verið framboð Vöndu til stjórnar KSÍ. Fram kemur þó í tilkynningu Þórsaranna að Íþróttafélagið Þór og Greifinn hafi haldið 29 súpufundi fyrir nokkrum árum, þar sem frummælendum var boðið og fjölmörg mál tekin til umfjöllunar. Nú hafi þráðurinn verið tekinn upp og ákveðið að bjóða formanni stærsta íþróttasambandsins á fyrsta fundinn.

Hér má lesa tilkynninguna í heild sinni.


UMMÆLI