Í hjarta koníaksframleiðslu Frakka

Í hjarta koníaksframleiðslu Frakka

Elís Þór Sigurðsson hefur í vetur stundað nám í 2. bekk í framreiðslu í VMA samhliða vinnu sinn sem framreiðslumaður á veitingastaðnum Rub 23 á Akureyri. Þegar honum bauðst í vetur að fara á Erasmus Mobility styrk til Frakklands var hann ekki lengi að grípa gæsina og nú er hann kominn heim, reynslunni ríkari. Fjallað er um dvöl hans í Frakklandi á vef VMA.

Elís Þór starfaði sem framreiðslumaður á litlum fjölskylduveitingastað í Rouillac, sem er í suðvestur hluta Frakklands, í tveggja tíma akstursfjarlægð norðan borgarinnar Bordeaux. Rouillac héraðið er rétt við bæinn Cognac og þarf þá ekki að hafa mörg orð um að þetta svæði er koníaksframleiðsluhérað Frakka, eitt af gróskumestu vínræktarhéruðum Frakka. Og það var einmitt það sem Elís Þór segist taka hvað mest út úr þessari ferð.

„Þetta var mjög skemmtileg reynsla. Veitingastaðurinn var lítill og því bætti ég ekki svo mikið við þekkingu mína þar í framreiðslunni. En á móti kemur að það var eitt og annað nýtt sem maður kynnist í sambandi við franskar matarhefðir og menninguna almennt. Frönskukunnáttan var engin þegar ég fór en hún hefur lagast aðeins! Ég lærði heilan helling um koníaksgerð enda er fólkið sem ég gisti hjá framleiðendur fyrir stórt koníaksfyrirtæki. Sonur fólksins sem ég bjó hjá er vínþjónn og lærði vínfræðin í skóla í London. Við fórum til Bordeaux og til nokkurra vínframleiðenda í St. Emillion. Ég fræddist því mikið um bæði koníak- og léttvínsframleiðsluna á þessu svæði. Í það heila var þetta mjög fróðlegt og skemmtilegt sem ég er þakklátur fyrir að hafa fengið tækifæri til að upplifa,“ segir Elís Þór Sigurðsson á heimasíðu VMA þar sem lesa má nánar um dvöl hans í Frakklandi.

Sambíó

UMMÆLI