Ingibjörg Isaksen efst hjá Framsókn í Norðausturkjördæmi

Ingibjörg Isaksen efst hjá Framsókn í Norðausturkjördæmi

Póstkosning fór fram um sex efstu sæti framboðslista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 25. september 2021.

Kosningin stóð yfir frá 1. til 31. mars. 

Á kjörskrá voru 2.207

Niðurstaðan er þessi:

1.     sæti, Ingibjörg Ólöf Isaksen, framkvæmdastjóri Læknastofa Akureyrar.

Hún fékk 612 atkvæði í 1. sæti

2.     sæti, Líneik Anna Sævarsdóttir, alþingismaður Fáskrúðsfirði.

Hún fékk 529 atkvæði í 1.-2. sæti 

3.     sæti, Þórarinn Ingi Pétursson, bóndi Grýtubakkahreppi.

Hann fékk 741 atkvæði í 1.-3. sæti.

4.     sæti, Helgi Héðinsson, oddviti  Skútustaðahrepps.

Hann fékk 578 atkvæði í 1.-4. sæti.

5.     sæti, Halldóra Hauksdóttir, lögmaður Akureyri.

Hann fékk 547 atkvæði í 1.-5. sæti.

6.     sæti, Kristinn Rúnar Tryggvason, bóndi Kelduhverfi.

Hann fékk 496 atkvæði í 1.-6. sæti.

Aðrir sem tóku þátt í póstkosningunni voru:

Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, Karítas Ríkharðsdóttir, blaðamaður Raufarhöfn, og Jónína Brynjólfsdóttir, viðskiptalögfræðingur Egilsstöðum.

Sambíó

UMMÆLI