Prenthaus

Ingvar stígur til hliðar sem formaður KA

Ingvar stígur til hliðar sem formaður KA

Ingvar Gíslason hefur stigið til hliðar sem formaður KA frá og með deginum í dag. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Ingvari á vef KA.

„Ég hef farið þess á leit við varaformann okkar Eirík S. Jóhannsson að hann taki við stjórn félagsins fram að aðalfundi KA, en hann er fyrirhugaður 6. apríl næstkomandi. Að auki liggur þá fyrir að varamaður okkar í aðalstjórn, Vignir Már Þormóðsson, taki sæti mitt í stjórn félagsins. Að sjálfsögðu verð ég þeim báðum sem og stjórninni allri innan handar með yfirfærslu á þeim verkefnum sem ég hef haft á minni könnu,“ segir í yfirlýsingu Ingvars.

Ingvar segir að á undanförnum vikum hafi það orðið ljóst fyrir honum að það fari ekki saman að vera í forystu hjá stóru félagi eins og KA á sama tíma og maki hans er kjörinn fulltrúi í sveitarstjórn.

Ég tel það farsælast fyrir KA, mig sjálfan og fjölskyldu mína, að ég stígi til hliðar sem formaður KA á þessum tímapunkti. Sem fyrr mun ég vinna ötullega að framgangi okkar ástkæra félags en á öðrum vettvangi,“ skrifar Ingvar á vef KA.

Hilda Jana Gísladóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, og Ingvar Gíslason eru hjón. Hilda Jana er oddviti Samfylkingarinnar á Akureyri í komandi sveitarstjórnarkosningum.

Sjá einnig: Framboðslisti Samfylkingar á Akureyri samþykktur

Sambíó

UMMÆLI