Ísland stútfullt af skátum um helgina

Eitt sinn skáti, ávallt skáti

Stærsta skátamót Íslandssögunnar verður haldið víðsvegar um landið, meðal annars á Akureyri, frá 25. júlí til 2. ágúst. Þá taka fleiri en 5.000 skátar frá 95 löndum þátt í hinu alþjóðlega skátamóti World Scout Moot. Mótið er fyrir þátttakendur á aldrinum 18-25 ára. Þetta er í 15. skipti sem slíkt mót er haldið og nú á Íslandi.

Um er að ræða eitt stærsta einstaka verkefni skátahreyfingarinnar í 100 ára sögu hennar á Íslandi og jafnframt stefnir í stærsta heimsmót eldri skáta sem haldið hefur verið frá því að fyrsta mótið var haldið 1931. Mótið er að öllu jöfnu haldið á fjögurra ára fresti, á mismunandi stöðum um heiminn hverju sinni.

Mótið verður sótt af fleiri en 5.000. Um 450 Ástralir, 360 Svisslendingar og 300 Brasilíumenn mæta til leiks, 85 frá Hong Kong og meira að segja munu mæta 15 frá Suður Afríku. Langstærsti hópurinn kemur frá Bretlandi eða um 650 manns. Um 100 íslenskir skátar taka þátt í mótinu. Fleiri en 300 íslenskir skátar hafa sinnt undirbúningi og skipulagningu mótsins frá árinu 2013 og vinna að því að gera upplifun þátttakenda ógleymanlega.

Þema mótsins er Change – Inspired by Iceland. Þemað er hægt að nýta á margvíslegan hátt en það passar vel við það markmið skátanna um að gera heiminn að betri stað. Þátttakendur munu setja sér persónulegar áskoranir áður en komið er til Íslands sem þeir ætla að læra eða gera á mótinu og taka svo með sér heim til að efla sitt samfélag.

Mótið verður sett í Laugardalnum í Reykjavík. Í framhaldinu dreifast þátttakendur á ellefu miðstöðvar víðsvegar um landið. Miðstöðvarnar eru í Reykjavík, Akureyri, Hafnarfirði, Þingvöllum, Skaftafelli, Heimalandi, Vestmannaeyjum, Selfossi, Akranesi, Hveragerði og í Hólaskjóli. Þar munu þátttakendur taka þátt í fjölbreyttri dagskrá sem snýst um ævintýri og virkni, menningu og umhverfi. Þeir munu einnig leggja samfélaginu lið með 20.000 vinnustundum í sjálfboðavinnu fyrir nærsamfélög einstakra miðstöðva, slík verkefni eru t.d. göngustígagerð, hreinsun stranda, leikir fyrir börn svo fátt eitt sé nefnt.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó