Jóan Símun Edmundsson í KA

Jóan Símun Edmundsson í KA

Knattspyrnumaðurinn Jóan Símun Edmundsson skrifaði í dag undir samning við knattspyrnudeild KA og mun spila með KA út núverandi tímabil. Jóan er 32 ára framherji sem er lykilmaður í færeyska landsliðinu þar sem hann hefur spilað 79 leiki og gert 8 mörk.

„Hallgrímur Jónasson þjálfari KA lék með Jóan með liði OB í Danmörku og ber honum afar vel söguna. Það fer ekki á milli mála að hér er á ferðinni hörkuleikmaður enda sannað sig í efstu deild í Þýskalandi og Danmörku sem og með landsliði Færeyja.

KA liðið stendur í ströngu á þremur vígsstöðvum og afar sterkt að fá Jóan í okkar raðir fyrir þau átök. Strákarnir taka á móti Dundalk í fyrri leik liðanna í undankeppni Sambandsdeildar UEFA á Framvellinum á fimmtudaginn og viku síðar mætast liðin ytra. Þá eru strákarnir komnir í bikarúrslitaleikinn auk þess sem gríðarlega hörð barátta er í Bestu deildinni.

Það verður frábært að fylgjast með þessum öfluga kappa í gula og bláa búningnum og bjóðum við hann hjartanlega velkominn í KA. Minnum á að miðasala á stórleikinn gegn Dundalk á fimmtudaginn er í fullum gangi í Stubb og aldrei að vita nema Jóan leiki þar sinn fyrsta leik fyrir KA,“ segir í tilkynningu á vef KA.

UMMÆLI

Sambíó