Jólasveinarnir í Dimmuborgum taka á móti gestum í sumar í sögustund

Jólasveinarnir í Dimmuborgum taka á móti gestum í sumar í sögustund

Á laugardögum í sumar ætla Jólasveinarnir í Dimmuborgum að taka á móti gestum á Hallarflöt vel valda daga en sannkallað jólasumar eru framundan í Dimmuborgum! Bræðurnir ætla að vera með sögustund fyrir börn á öllum aldri og segja frá sér og lífi þeirra í Dimmuborgum.

Jólasveinarnir fengu einnig styrk úr framkvæmdasjóði ferðamannastaða á síðasta ári og nú príða Dimmuborgir nýjum skiltum með upplýsingum um bræðurna – bæði við innganginn í Dimmuborgir, niður á Hallarflöt, við Kaffi Borgir og síðan við jólasveinahellinn sjálfan. 

Sýningarplanið er á eftirfarandi dögum: 

3. júlí kl 13:00

10. júlí kl 13:00 & 14:00

17. júlí kl 13:00 & 14:00

24. júlí kl 13:00 & 14:00

31. júlí kl 13:00 & 14:00

7. ágúst kl 13:00 & 14:00

6 ára og eldri borga 1500kr og miðasala fer fram á tix.is og í Kaffi Borgum. Fólk er svo hvatt til að taka með sér púða eða teppi til að sitja á en nokkrar gærur og kollar eru einnig á staðnum. 

UMMÆLI