Prenthaus

Jólatöfrar í Hlöðunni á Akureyri

Jólatöfrar í Hlöðunni á Akureyri

Þann 11.  desember verður barnasýningin Jólatöfrar frumsýnd í Hlöðunni í Litla-Garði á Akureyri. Um er að ræða sýningu fyrir yngstu kynslóðina þar sem töfrar jólanna vakna til lífsins með litríkum leik, söng og dansi. Þar verður skemmtilegum jólalögum sem allir ættu að þekkja fléttað saman í fallega sögu.

„Sagan segir frá Ellý sem er spennt fyrir jólunum, mest vegna gjafanna eins og flest börn á hennar aldri. Það sem hún þráir hvað allra heitast er að hitta jólasveininn og nóttina fyrir aðfangadag fer svo sannarlega allt á flug,“ segir Aníta Ísey Jónsdóttir, höfundur og leikstjóri Jólatöfra.

Hlöðunni á Akureyri verður breytt í lítið jólaland með jólamarkaði með allskyns fallegum munum. Kaffi, kakó og vöfflur verður til sölu og öll börn fá mandarínu frá jólasveininum að sýningu lokinni.

„Það getur orðið kalt svolítið í Hlöðunni svo við hvetjum fólk til þess að mæta klætt eftir veðri þrátt fyrir að setið verði inni,“ segir Aníta Ísey og bætir við að boðið verði upp á teppi svo fjölskyldur haft það notalegt á meðan á sýningunni stendur.

Sýningin verður sýnd tvær helgar í desember og er því takmarkaður fjöldi miða í boði. Leikarar og söngvarar í sýningunni eru þau Ívar Helgason, Jónína Björt Gunnarsdóttir og Jenný Lára Arnórsdóttir.

Miðasala er hafin á tix.is.

UMMÆLI

Sambíó