Jónas með hreim

Jónas með hreim

Hátíðin Jónas með hreim verður haldin í tengslum við Dag íslenskrar tungu. Fögnum íslenskunni í öllum hljómbrigðum!

Markmið hátíðarinnar er að kynna íslenskuna í öllum þeim fjölbreyttu hljómbrigðum sem finnast og vekja athygli á að íslenskan sameini okkur öll sem hana tölum, hvort sem hún er okkar fyrsta tungumál, annað eða þriðja. Hátíðin fer fram dagana 15.-17. nóvember á ýmsum stöðum í bænum. Alþjóðastofa Akureyrarbæjar í samstarfi við aðrar stofnanir, hópa, samtök og einstaklinga heldur utan um viðburði hátíðarinnar. 

Samstarfs- og styrktaraðilar eru: Akureyrarbær, Akureyrarstofa, Alþjóðastofa, Amtsbókasafnið á Akureyri, Innflytjendaráð á Akureyri, Eyþing, Háskólinn á Akureyri, KEA, Listasafnið á Akureyri, Minjasafnið á Akureyri, Orðakaffi, Norðurorka, Ós Pressan og Penninn Eymundsson.

DAGSKRÁ

Fimmtudagurinn 15. nóvember kl. 16:30

Sögustund með hreim á Amtsbókasafninu

Föstudagurinn 16. nóvember

Dagskrá í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi kl. 10-11

– Leikskólabörn af erlendum uppruna syngja Frost er úti fuglinn minn

– Ljóð eftir Jónas Hallgrímsson lesin upp með hreim

Minjasafnið á Akureyri, Nonnahús kl. 10-19

Opið í Nonnahúsi, æskuheimili hins víðförla rithöfundar Nonna

Laugardagurinn 17. nóvember

Amtsbókasafnið á Akureyri kl. 12-13

Upplestur og verðlaunaafhending útfrá ljóða-og smásögukeppni grunnskólabarna af erlendum uppruna, fer fram á Amtsbókasafninu

Listasafnið á Akureyri, Ketilhús kl. 14-16

Alþjóðlegt eldhús 2018 Innflytjendaráð á Akureyri /Multicultural Council á Akureyri býður gestum upp á smakk frá ýmsum löndum

Í gangi alla dagana:

– Ratleikur á Amtsbókasafninu. Leikur að orðum!

– Sýning á verkum leikskólabarna og Óspressunnar, tileinkuð íslenskri tungu í gluggum Eymundsson

UMMÆLI