Jonna er bæjarlistamaður Akureyrar 2024

Jonna er bæjarlistamaður Akureyrar 2024

Vorkoma Akureyrarbæjar var haldin í Listasafninu á Akureyri í dag. Þar var meðal annars kunngjört að Jonna, Jónborg Sigurðardóttir, væri bæjarlistamaður Akureyrar 2024. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.

„Undanfarin ár hefur Jonna einbeitt sér að endurvinnslulistsköpun og haldið fjölmargar sýningar auk þess að taka þátt í samsýningum. Ruslatunnur bæjarins hafa borið textílverk hennar og vakið mikla athygli vegfarenda og ferðamanna. Jonna hefur og setið í stjórn Myndlistarfélagsin en auk þess látið sig miklu varða alla aðra viðburði sem eiga sér stað í Listagilinu á Akureyri,“ segir í umsökn Akureyrarbæjar.

Að þessu sinni sóttu níu einstaklingar um listamannalaun, sex karlmenn og þrjár konur. Í umsögn faghóps um viðurkenninguna segir meðal annars: „Við val á bæjarlistamanni horfðum við fyrst og fremst til þriggja meginþátta: þess sem listamaðurinn hefur unnið að á undanförnum árum, þeirra verkefna sem listamaðurinn ætlar sér að sinna á tímabilinu og auðga þar með menningarlíf bæjarins og þess að hann búi og starfi á Akureyri.“

Sjá einnig: Björgvin Snæbjörnsson hlýtur Byggingarlistaverðlaun Akureyrarbæjar fyrir Nonnahaga 9

Sjá einnig: Rauði krossinn og Drífa Helgadóttir fá Mannréttindaviðurkenningu Akureyrarbæjar

Sjá einnig: Steini P og Þorsteinn E hlutu Heiðursviðurkenningu Menningarsjóðs

Sjá einnig: Sunneva Kjartansdóttir er sumarlistamaður Akureyrarbæjar 2024

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó