KÁ-AKÁ, Emmsjé Gauti, GKR, Alexander Jarl og fleiri koma fram á Iceland Airwaves  á Akureyri

KÁ-AKÁ, Emmsjé Gauti, GKR, Alexander Jarl og fleiri koma fram á Iceland Airwaves á Akureyri

Iceland Airwaves tilkynnti í dag fleiri listamenn sem koma fram á hátíðinni í ár.  Meðal þeirra eru bandaríska svetin Fleet Foxes, Billy Bragg, JFDR, Mammút og Sturla Atlas. Fleet Foxes munu verða með tvenna tónleika í Eldborgarsal Hörpu, þ. 3. og 4. nóvember nk. Kaupa þarf sérstakan miða á fyrri tónleikana en þeir síðari standa öllum miðahöfum Iceland Airwaves til boða á meðan húsrúm leyfir. Miðahafar þurfa þó að nálgast sérstakan aðgöngumiða á tónleikana og hefst afhending þeirra miða í Hörpu á tónleikadaginn 4. nóvember kl. 14:00. Miðasala á tónleikana 3. nóvember hefst á tix.is og harpa.is föstudaginn 24. febrúar nk. Hér að neðan er heildarlisti yfir þá listamenn sem tilkynntir voru í dag á Iceland Airwaves 2017.

Iceland Airwaves tónlistarhátíðin verður haldin í 19. skipti dagana 1. – 5. nóvember nk. Miðasala er hafin á tix.is.

Listamenn tilkynntir í dag:
Fleet Foxes (US)
Billy Bragg (UK)
Mammút
Lido Pimienta (CF)
Childhood (UK)
Lonely Parade (CA)
JFDR
Hórmónar
Shame (UK)
KÁ-AKÁ
Tófa
Hildur
Alexander Jarl
Cyber
Sturla Atlas
aYia

Eins og tilkynnt hefur verið mun hátíðin einnig vera haldin á Akureyri þar sem boðið verður upp á dagskrá í tvo daga og verða því enn fleiri möguleikar í boði fyrir hátíðargesti.

Af þeim listamönnum sem tilkynntir hafa verið og  koma einnig fram á Akureyri eru Ásgeir, Benjamin Clementine (UK), Emiliana Torrini and the Colorist (IS/BE), JFDR, Arab Strap (SCO), Mammút, KÁ-AKÁ, Emmsjé Gauti, GKR, Xylouris White (GR/AU) Hildur, Alexander Jarl, aYia, Sturla Atlas og Cyber.

UMMÆLI

Sambíó